Yfirmaður hló að litlum limi

Yfirmaður hló að litlum limi

Kannski birta þessir nýju nektarskimar aðeins of skýrar myndir, segir NBC Miami í frétt sinni.  Öryggisstarfsmaður í Miami var handtekinn fyrir líkamsárás í bræðikasti eftir að hafa ráðist á samstarfsmann sem hafði gert grín að smávöxnum kynfærlum hans, þegar hann gekk í gegn um nektarskima við starfsþjálfun.

Rolando Negrin (44 ára) barði verkstjóra sinn með lögreglukylfu eftir að sá síðarnefndi hafði gert mikla lukku á öryggisnámskeiði með sniðugum athugasemdum um snabbaralegan niðurvöxt Negrins.

“Árásin kann að vera fyrsta sönnun þess að þessir nýju nektarskimar skilji lítið eftir fyrir ímyndunaraflið,” segir í fréttinni, en yfirvöld hafa viljað láta í það skína að myndirnar séu grófgerðar og af litlum gæðum.

TSA Incident Proves Authorities Are Engaged In Monumental Body Scanner Cover-Up

Prenta Prenta