Yfirhylming?

Menn greinir á um hvað gerðist þann 11. september 2001.  Þeir sem telja opinberu skýringuna ekki trúverðuga, eiga oft í vandræðum með að nálgast opinber gögn varðandi rannsókn málsins.

Skipuð var pólitísk rannsóknarnefnd og hún gaf út sína skýrslu.  En þeir sem vilja skoða önnur sjónarhorn, eða jafnvel fara yfir forsemdur fyrir niðurstöðum nefndarinnar fá að finna fyrir tregðu hjá ýmsum kerfisstofnunum við að gera opinber gögn sem ættu að liggja á lausu.

Nú má spyrja, “ef þeir hafa ekkert að fela, hvað eru þeir þá hræddir við?” 

Þessa sömu lummu tyggja kerfisþrælarnir þegar fólk fyrtist við forvirkum rannsóknum, eftirlitsmyndavélum, nektarskimum og öðrum njósnum um borgarana.  En öfugt við þann rétt borgara að eiga að teljast saklausir þar til sekt er sönnuð, þá gildir ekkert slíkt um ríkisstofnanir og þjóna almennings.  Þeir mega og eiga að búast við því að störf þeirra séu skoðuð og sæti gagnrýni.

Hvað merkir það því þegar kerfið vill ekki birta upplýsingar varðandi þennan atburð?

Yfirhylming?

Aidan Monaghan skrifar á vefsíðuna 911blogger.com:

Héraðsdómur Nevadaríkis hafnaði í úrskurði frá 17. júní 2010 beiðni borgara um að leitar og ljósritunargjöld FBI verði felld niður á færslum sem varða hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001.  Slík gjöld eru oft veruleg og geta hindrað birtingu umbeðinna gagna á grundvelli upplýsingalaganna.

FBI hefur lagt fyrir beiðni til dómsstólsins að allar beiðnir sem varða gögn frá rannsókninni á 11. september 2001 verði undanskildar frá upplýsingalögunum.

http://911blogger.com/news/2010-07-08/federal-court-rejects-911-foia-records-fee-waiver-request

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: