Crazy-Horse Kristinn: RÚV eru aular

Það var úr karakter hjá RÚV að eiga hlut í að rugga bátnum með aðstoð við Collateral Murder myndlekann.  Enda virðist þar hafa verið að verki villingur, sem ekki spilar með og var þyrnir í augum steingeldra korpórat-penna stofnunarinnar.  Það endaði með því að Crazy Horse Kristinn var rekinn, og þar með er RÚV aftur komið á sinn stað, sem stærsti kakkalakkinn á ruslahaugum íslenskrar fjölmiðlunar.

Kristinn rekur söguna í fínu viðtali við Jón Bjarka Magnússon, sem birtist í síðasta helgarblaði DV.  Hann gefur í skyn að hann hafi verið rekinn vegna þess að hann láti illa að stjórn.

Eftir að Stöð 2 gugnaði á Kompás þáttunum, sem Kristinn stóð að ásamt fleirum, þá fékk hann vinnu hjá fréttastofu RÚV, og samdi um það við stjórann að vinna í fréttaskýringum og rannsóknum, frekar en í daglegum “fréttamokstri”, sem honum var farið að leiðast, enda orðinn reyndur Kompásmaður og sopið ýmsa fjöru á ferlinum.

Hann hafði ekki unnið lengi hjá RÚV þegar fyrsti Wikilekinn lenti í fanginu á honum.  Lánabók Kaupþings.  “Þetta var sjóðheitt efni, en ég nálgaðist það eins og hverja aðra heimild: Með því að tryggja að þetta væri ófalsað efni,” segir Kristinn.  “Það tók mig ekki langan tíma að fá staðfestingu á því og fyrsta fréttin var flutt og fleiri boðaðar.”  Í kjölfarið settu FME og Kaupþing lögbann á frekari fréttaflutning og Wikileaks varð skyndilega öllum kunnugt á Íslandi.

Þessi framganga Kristinns á fyrstu dögum í starfi hefur áreiðanlega valdið sárri nostalgíu hjá þeim eldri, sem hafa yfir árin selt sjálfstæði sitt fyrir öryggi og skárri stöður hjá stofnuninni.  Þeir yngri eru hinsvegar aldir upp í hópumhverfi frá leikskólaaldri, þar sem hinir órólegu eru fljótt greindir og óróleikinn “linaður” með nýjustu lyfjatækni.  Þannig að Kristinn hóf störf með því að rugga bátnum og “stela” athygli frá húsbúnaði og mjúku starfsfólki stofnunarinnar.

Þegar stærsta frétt ferilsins féll í fang Kristinns, aftur frá Wikileaks, þá fór hann til Íraks og tók viðtöl við Íraka, þar á meðal ekkju Matahsers Tomal, ökumanns sendibifreiðarinnar sem skotin var í tætlur þegar hann stöðvaði til að aðstoða helsærðan fréttamann Reuters.

Göbbels liðar RÚV voru ekki ýkja hrifnir af þessari fréttabombu sem Kristinn færði þessari fúnu stofnun.  Myndbandið var birt og vakti heimsathygli þann 5. apríl, þar á meðal að RÚV væri í samstarfi við Wikileaks.  “Í raun, þó að umfangið væri minna í alla staði, var RÚV í þeirri stöðu sem Guardian, New York Times og Der Spiegel eru nú í, með þátttöku þeirra í birtingu gagnanna frá Afganistan,” segir Kristinn.  Hann hafði samt strax á tilfinningunni að þetta samstarf væri ekki þóknanlegt yfirstjórn stofnunarinnar.

Hvernig þá?  Jú, þegar RÚV komst í þá aðstöðu að vera í fararbroddi allrar heimspressunnar að kvöldi 5. apríl, þá ákvað Sigríður Hagalín Björnsdóttir, vaktstjórinn þennan dag að fyrsta frétt kvöldsins yrði: Lausn í sjónmáli í kjaradeilu unglækna!

En kornið sem fyllti mælinn, það sem notað var sem ástæða fyrir brottrekstri Kristinns er að hann neitaði að leika svokallaða “stúdíoinnkomu” fréttamanns, en þá stendur fréttamaðurinn í beinni útsendingu fréttanna með prik og potar eitthvað út í loftið sem forslag að frétt sinni í fréttatímanum.  “Mér hefur alltaf fundist þetta vera aulahrollsvaki og hef ekki viljað taka þátt í þessu.  Þetta er hvorki fréttaefninu né fréttamanninum til framdráttar,” segir Kristinn.  Hann var því rekinn fyrir að vilja ekki spila með og láta aulalega eins og hinir.

http://www.dv.is/frettir/2010/7/31/kristinn-hrafnsson-rekinn-fyrir-oendanlega-fyndid-agabrot/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments