WHO hungrar í skattfé

Af vef Corbett Report

Strax í kjölfar hollenskrar rannsóknar á hagsmunaárekstrum helsta ráðgjafa WHO við bóluefnisframleiðendur og yfirlýsingu um að ‘Council of Europe’ muni kanna þátt þeirra í að valda og viðhalda skelfingu vegna H1N1 flensunnar í þeim tilgangi að selja bóluefni fyrir stóru lyfjafyrirtækin, þá kemur í ljós að WHO er nú að íhuga frumlegar fjármögnunartillögur, þar á meðal hugmynd um að leggja almennan skatt á notkun internetsins!

Þessar óvæntu fréttir koma úr skýrslu sem gerð var af Vinnunefnd Sérfræðingahóps í aðdraganda fundar yfirstjórnar WHO sem haldin er tvisvar á ári.  Sérfræðingunum var falið að finna leiðri til að fjármagna tilskipun WHO um að koma bóluefnum og annarri heilbrigðisþjónustu til landa þriðja heimsins.  Nefndin hefur unnið að verkefninu síðustu 14 mánuði og hefur smíðað ýmsar tillögur, þar á meðal:

- Rafrænn skattur: “Internet umferð er gríðarleg og líkleg til að vaxa hratt; þessi skattur gæti gefið tugi milljarða Bandaríkjadala frá breiðum hópi notenda.”

- Skattur á fjármálafærslur: “Brasilía setti á slíkan skatt með 0,38% skattaprósentu á reikninga sem greiddir voru á netinu og meiriháttar millifærslur, þeir höluðu inn 20 milljarða Bandaríkjadala á ári og fjármögnuðu 87% af helstu samfélagsþjónustu sinni, Bolsa Familia, áður en þessi skattur var lagður af.”

- Skattur á vopnasölu: “10% skattur á vopnasölu gæti gefið um 5 milljarða Bandaríkjadali árlega”.

Því fjármagni sem aflað yrði með þessum hætti, tugir milljarða dollara eftir því hvaða áætlun væri notuð, yrði að því virðist notuð til hjálpar þriðja heiminum að afla sér lyfja og læknisþjónustu, bæta úr skorti á fjárhagslegum hvata fyrir lyfjarisana til að framleiða lyf fyrir þennan markað. 

Þó þessar áætlanir virðist göfugar á yfirborðinu, þá eru þær ekkert annað en fyrirsláttur fyrir WHO til að koma í verk áætlunum Sameinuðu Þjóðanna um að leggja á skatt á hnattræna vísu til að fjármagna yfirlýsta stefnu sína um að koma á hnattrænu stjórnkerfi.  Þar á ofan hefur komið í ljós að WHO gekk erinda stóru lyfjafyrirtækjanna og þeirra svikahrappa við að hafa þjóðir heims að féþúfu.  Enn má þó bæta við syndalista þessarar óguðlegu stofnunar, en hún hefur orðið uppvís að því að gera konur ófrjóar án þeirra samþykkis eða vitundar í landi eftir landi og þá má ljóst vera að þetta eru engar venjulegar áætlanir um skattlagningu til góðgerðamála.  Þvert á móti gætu þessar áætlanir, ef þær ná fram að ganga, blásið lífi í nýja mannbótastofnun á vegum Sameinuðu Þjóðanna, eitthvað sem ekki hefur verið uppi á yfirborðinu síðan eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari.

Meira: Insult to Injury: Why We Must Oppose the WHO Global Tax Proposals

Mynd í almannaeign: 

Portreitt af glæpamönnum úr verki Alphone Bertillon’s (d. 1914) Idenfication anthrométrique (1893).  Myndin átti að sýna “glæpatýpur”.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments