Nokkuð góð mynd um afleiðingar stefnu IMF og Alþjóðabankans í þróunarlöndunum. Í þessari mynd rekja fyrrverandi starfsmenn og aðrir svikamyllu IMF og Alþjóðabankans. Þó myndin sé kominn til ára sinna og ýmsar tölur úreltar þá er boðskapurinn enn í fullu gildi. T.d. fóru 44% af öllum tekjum ríkissjóðs Filipseyja í greiðslur á erlendum skuldum og svokölluð þróunaraðstoð er grín því fátæku ríkin borga tvöfalt meira í vexti af lánum en þau fá í aðstoð.

“War by other means” er hjá Kínverjum kallað “Unrestricted Warfare”. Í samnefndri bók eftir tvö hershöfðingja í alþýðuhernum er fjallað um aðferðir til að sigra andstæðing sem býr yfir miklum tæknilegum yfirburðum í hernaði (Bandaríkin). Meðal aðferðanna eru efnahagsleg og pólitísk átök, netárásir og merkilegt nokk, lögfræðihernaður. Telja höfundarnir að hugsanlegur andstæðingur sé illa búinn undir slíkar aðferðir, sé þeim beitt í árásarskyni, og af helstu efnahagsstærðum að dæma er ekki að sjá að þeir hafi rangt fyrir sér.
Svá góðr
1