Vörður lögregluríkisins

Stutt, vönduð samantekt á nokkrum lykilatburðum sem varða ris lögregluríkis á heimsvísu.

Eisenhower sagði í frægu sjónvarpsávarpi sínu: Gætið ykkar á hergagnamaskínunni.  Tókum við mark á honum?

Gjöreyðing millistéttarinnar með skipulögðu efnahagshruni og fyrirsjáanlegu félagslegu og pólitísku róti sem því fylgir kallar á innleiðingu á hátækni lögregluríki og enn frekara rofi á því sem við töldum eðlileg mannréttindi.

Alex nefnir MIAC skýrsluna í þessu myndbandi.  Ekki víst að margir Íslendingar þekki hvað þar er átt við, því ekki hefur birst stafur um það í íslenskum stórstraum, svo ég viti.  En í stuttu máli var þessari skýrslu, sem gerð var fyrir lögreglumenn í Missouri fylki, lekið til Alex Jóns, og hann og jaðarfjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um hana í mörgum greinum.

Í skýrslunni kemur í ljós, í stuttu máli, að venjulegt fólk er helsta viðfang alls viðbúnaðarins gegn hryðjuverkum.  Ef þú styður Bob Barr, fullkomlega venjulegan stjórnmálamann í Bandaríkjunum, eða Ron Paul, eða Chuck Baldwin, kristilegan föðurlandsvin, þá ertu grunsamlegur, hugsanlega “innlendur hryðjuverkamaður”.

Auk þess eru þeir sem vilja að stjórnarskráin sé virt, eru á móti NWO, Seðlabankanum, Sameinuðu þjóðunum, leynifangelsum, tekjusköttum, Norðurameríkubandalaginu, RFID kubbum, frjálsum fóstureyðingum eða ólöglegum innflytjendum allir taldir meira en líkelgir til að vera “innlendir hryðjuverkamenn”.

Meira um MIAC skýrsluna (og afrit af henni) hér.

Lifi forvirk löggæsla, eða hvað?

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments