Samkvæmt ísraelska fréttablaðinu Haaretz stöðvuðu Líbanskir hermenn bíl hlaðinn vopnum við landamæri Sýrlands og Líbanons. Bíllinn var hlaðinn vélbyssum og sprengjuvörpum á leið til Sýrlands. Stjörnvöld í Damaskus og Líbanon hafa unnið náið saman að undanförnu við að stöðva slíkar vopnasendingar.
Það kemur einnig fram í fréttinni að stjórnvöld í Sýrlandi kenna vopnuðum sveitum hryðjuverkamanna um átökin í landinu. Sem rímar ágætlega við efni þessarar fréttar. En síðan segir að skýrsla UN kenni Assad of félögum um dráp á 3000 lýðræðissinnuðum mótmælendum.
Að mínu mati er svona fréttafluttningur vestrænna fjölmiðla lítið annað en áróður. Fréttin reynir að vera “hlutlaus” en er það ekki með því að gefa í skyn að sýrlensk stjórnvöld drepi mótmælendur en ekki hryðjuverkamenn.

Comments
Powered by Facebook Comments