Vísindi án vísindalegu aðferðarinnar

 

Pólitísk yfirhylmingarrannsóknarnefnd NIST útskýrði hrun byggingar 7 með vönduðu tölvulíkani og grafík.  En þegar almennir borgarar krefjast aðgangs að forsemdum þessa vandaða excel líkans í krafti upplýsingalaga, þá er því neitað.

Upplýsingalögin hafa reynst sjálfstæðum rannsóknaraðilum atburðanna 11. september 2001 öflug skófla til að grafa upp gögn og upplýsingar sem kerfisbræður myndu helst halda í innilegum trúnaði.

Skemst er að minnast gullnámu hreyfi og ljósmynda sem samtökin  International Center for 9/11 Studies náðu að þvinga út úr NIST eftir mikla mæðu, en stundum er einnig sigur í neitun að aðgangi.

Hér er dæmi um það.  NIST hafnar kröfu um aðgang að þeim gögnum sem notuð voru til að útskýra hið óútskýranlega, hvernig 47 hæða sérstyrkt almannavarnabygging gat hrunið niður í eigin grunn í nánast frjálsu falli, eftir að lítilsháttar eldur hafði logað á nokkrum hæðum í einangruðum hólfum.

Hvers vegna? 

Pursuant to Section 7(d) of the National Construction Safety Team Act, I hereby find that the disclosure of the information described below, received by the National Institute of Standards and Technology (“NIST”), in connection with its investigation of the technical causes of the collapse of the World Trade Center Towers and World Trade Center Building 7 on September 11,2001, might jeopardize public safety. Therefore, NIST shall not release the following information: 

(sjá upprunaskjal)

 Ekki er hægt að veita aðgang að þessum upplýsingum því að þær gætu ógnað öryggi almennings.

Hvað gætu þær gert?

Þær gætu leitt í ljós að allt það mannhaf sem býr í eða vinnur í háhýsum sé í stórhættu, því að byggingaverkfræði er ekki grundvölluð í alvöru vísindum, heldur bara fiskistofu-húmbúkki og fjármálaeftirlitsfræðum, þannig að öll háhýsi eru í raun dauðagildrur sem geta hrunið á hverri stundu.

Eða ef fólk vissi að ríkisstjórnin og fjölmiðlar eru ábyrg um yfirhylmingu og ef til vill meðsek í svörtum aðgerðum undir fölsku flaggi gegn eigin þjóðum, að þá gætu orðið slíkar óeirðir að öryggi almennings sé hætta búin.

En er öryggi almennings ekki líka hætta búin með því að láta stjórnvöld komast upp með að búa til fáránlegar samsæriskenningar um hvað gerðist og halda hinu rétta leyndu?

Niðurstaðan er sú að við eigum að trúa NIST, af því bara.  Þeir þykjast hafa vísindalega sannað að ekkert athugavert sé við hrun World Trade Center byggingar 7, en krefjast þess að við tökum þeim sannindum á trúarlegum grundvelli.

Mynd: WTC 7 fyrir 11. sept 2001, 911-reserach.com
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,