
Mynd CC apollo 1981
Vísindamönnum hjá CERN rannsóknarstofunni í Sviss var skipað að draga engar ályktanir út frá gögnum sem benda til þess að sólin sé langstærsti áhrifavaldurinn þegar kemur að sveiflum á hitastigi jarðarinnar.
Það er sjokkerandi dæmi um það hvernig pólitískum þrýstingi er beitt innan báknsins til að stýra vísindasamfélaginu inn á pólitískt rétthugsandi brautir hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum.
Vísindamenn CERN voru að staðfesta fyrri rannsóknir sem benda til þess að geislun frá sólinni sé þungamiðjan í myndun skýja á jörðinni, en skýin (vatnsgufa) eru lang áhrifamesta ”gróðurhúsalofttegundin” á jörðinni.
Í viðtali við Welt Online segir Rolf-Dieter Heuer, forstjóri CERN “Ég hef beðið félaga mína að birta niðurstöðurnar, en ekki túlka þær.”
Ástæða Hauers fyrir því að þagga starfsmenn sína er sú að þá myndu þeir “tafarlaust lenda í feni pólitískrar umræðu um veðurfarsbreytingar.”
Með öðrum orðum, Heuer vill ekki að gögnin séu gerð of opinber því þau virðast stangast á við þá skoðun að hnattræn hlýnun sé aðallega af mannavöldum.
Það þarf ekki að fjölyrða um að viðhorf Heuers eru í algerri andstöðu við það sem vísindin eiga að snúast um, hlautlausar mælingar og að leita sannleikans, hver sem hann er, en ekki að staðfesta pólitíska “einingu” um uppdiktaðar forsemdur fyrir alþjóðlegri skattlagningu á úblæstri koltvísýrings.
Þrátt fyrir staðhæfingar dómsdagsspámanna úr röðum loftslagskenningasmiða um að hinn ofsafengni eldhnöttur í nærgeimi okkar hafi ekkert með veðurfarsbreytingar að gera (og ekki tunglið heldur), þá er þessi svikamylla þeirra að rotna í sundur. Fólk trúir þeim ekki lengur, ekki eftir Climategate, alveg sama hve miklum áróðri þeir beita.

Comments
Powered by Facebook Comments