Smiley face
bessastaðir

Viltu þú að Forsetinn verði kona?

Höfundur bjorn þann . Flokkur Sett í samhengi, Stjórnmál

DV konan Íris Erlingsdóttir birtir svör fjögurra forsetaframbjóðenda á DV.is í dag.  Tveir kallar og tvær konur svara henni en þó ekki sjálfur Ólafur Grímsson eða Óli grís eins og við hér á Kryppunni köllum hann.  Ástþór og gaurinn frá Noregi svara Írisi skilmerkilega og draga ekkert undan.  Ástþór fer reyndar á flug og liggur mikið á hjarta eins og venjulega.  En báðar konunar neita að gefa upp sína afstöðu til grundvallarmála eins og t.d. hvort þeir vilji fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur eða hvort náttúruauðlindir eigi að vera í eign þjóðarinnar.

Sjónvarpsdrottningin Þóra Arnórsdóttir segist þó vera alveg hlutlaus og ekki styðja neina stjórnmálaflokka.   Henni þykir líka óskaplega vænt um þjóðin og hefur lítin áhuga á frægu fólki.   Þess vegna vill hún bjóða sig fram til forseta.  Einnig vill hún stuðla að sátt og uppbyggingu.

Herdís Þorgeirsdóttir fer ekki eins fínt í þetta og Þóra.  Eina ástæða hennar fyrir framboði í dag er að segja núverandi drullusokki á Bessatöðum stríð á hendur.  Hann er búinn að vera alltof lengi þarna og misnota aðstöðu sína fyrir fjármálaöflin.  Einmitt þess vegna ætlar hún ekki að eyða krónu með gati í þetta framboð sitt.  Hún röflar líka eitthvað um mannréttindi og hvað hún sé klár og gáfuð.

En hvernig stendur á því að hvorki Þóra né Herdís gefa upp sína afstöðu til grundvallarmála.  Hvaða sjúka plott er það að þykjast eða vilja ekki hafa skoðun á þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri, eign náttúruauðlinda eða þjóðkirkjunni.  T.d. svarar Hannes Bjarnason því að það væri eðlilegt að allir íbúar Íslands nytu góðs af náttúruauðlindum landsins.  Er þetta eitthvað flókið fyrir kellingarnar?

 

Lyklar:,

bjorn

Er launamaður og áhugamaður um mat og fjallgöngur niður brekku.

Skrípó