Vilja rannsókn á viljugri stríðsstjórn

Steingrímur J. mynd CC Magnus Fröderberg/Norden.org

Venjulegir Vinstri Grænir eru svo vitlausir að þeir hittast á fundum og álykta um hitt og þetta, eins og þeir hafi eitthvað um allt að segja.

Nýjasta nýtt – nú vilja þeir að skipuð verði rannsóknarnefnd til að rannsaka aðdragenda þess að Ísland samþykkti loftárásir NATÓ á Líbíu.  Þeir voga sér meira að segja að efast um, þó það sé gríðarlega varfærnislega orðað, að loftárásir NATÓ á óbreytta borgara hafi komið í veg fyrir að aðrir, eða sömu borgarar hefðu bara verið drepnir með aðgerðaleysi stjórnvalda.  Líkt og læknir sem sker alla útlimi af sjúkling til að bjarga honum frá lungnakrabbameini, þá er stundum þörf á styrkri og stríðsóðri hendi við stjórnvöl friðarsamtaka eins og NATÓ til að bjarga sakleysingjum frá dauða af öðrum orsökum.

Jóhanna sendir þeim VG mönnum tóninn og segir það “hættulegan leik” þegar stjórnmálaflokkar í spillingarsæng fari að álykta hver um annan.  Betra sé þá foringjaræðið, að herra Steingrímur ólygni Joð Sigfússon tali bara beint við Jóhönnu, og þau ákveði svo í sameiningu að hunsa óánægjuraddir flokksmanna sinna á hljóðlegan hátt og fjarri hinu daufa ljósi vændismiðlanna.

Hér er ályktun Vinstri Grænna:

 

Ályktun um loftárásir NATO á Líbíu

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn 26.-27. ágúst 2011 vísar til ályktunar frá fundi sínum 20.- 21. maí 2011 og ítrekar fordæmingu sína á loftárásum Atlantshafsbandalagsins á Líbíu. Fundurinn beinir því til Alþingis að skipuð verði rannsóknarnefnd til að rannsaka aðdraganda þess að Ísland samþykkti þessar aðgerðir. Þessar árásir beindust meðal annars að borgaralegum skotmörkum og ollu miklu tjóni og dauða fjölda óbreyttra borgara. Hvort með þeim hafi verið komið í veg fyrir verra ástand er ómögulegt að segja en hins vegar er ljóst að heimsvaldahagsmunir vestrænna ríkja og ekki síst olíuhagsmunir réðu miklu þessar aðgerðir. Fundurinn lýsir yfir stuðningi við alþýðu Líbíu og fordæmir hvers kyns kúgun og arðrán þar sem annars staðar. Jafnframt fagnar fundurinn þingsályktunartillögu þingmanna VG um úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu sem lögð var fram á Alþingi 30. maí síðastliðinn.

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments