Þægilegt samband Google og bandarískra njósnastofnanna hefur enn á ný verið þrýst fram í dagsljósið þegar fréttir berast af samstarfsverkefni Google með CIA í internetseftirlitsverkefni sem slæðir upplýsingar úr Twitter færslum, blogg og vefsíðum, og getur einnig “spáð fyrir um framtíðina!”
Fyrirtækið lýsir greiningum sínum sem “æðsta stigi frjálsrar njósnastarfsemi” eða “open-source” njósnastarfsemi.
Afurðin sigtar í gegn um milljónir færslna og samtala sem eiga sér stað á bloggum, YouTube, Twitter og Amazon til að “halda utan um rauntímanjósnamöppu um einstaklinga”.
Hún er einnig samhæfð við Google Earth verkefnið, sem einnig var fjármagnað af CIA peningum. Sú samhæfing gerir kleift að fylgjast með staðsetningu einstaklinga eða hópa í njósnamöppunni.
Þó fyrirtækið hafi það ekki með í yfirlýsingum sínum, þá má gera ráð fyrir að upplýsingar af feisbúknum og gmail séu einnig slæddar upp í njósnamöppuna, auk allra skjala sem gerð eru með google skrifstofuhugbúnaðinum.
Að sjálfsögðu er Framtíðin á upptöku stíluð inn á öryggismarkaðinn, “gegn” hryðjuverkum, sko, en njósnabúnaðinum má einnig beita til að rannsaka eða spá fyrir um hefðbundna glæpi, stefnur og einkamál fyrir dómi, sem hugumstórir útrásarvíkingar gætu kunnað að meta, svo þeir geti komið eignum í burtu og verið sjálfir utan arms laga og reglu.
Í þessu samhengi er möguleikinn til að spá fyrir um þróunina í framtíðinni aðeins eitt hænuskref frá þeirri tækni sem notuð var í kvikmyndinni Minority Report.
Sjá nánar grein Steve Watson um málið, ásamt peppuðu kynningarmyndbandi frá Framtíðinni á upptöku.
Google and CIA Plough Millions Into Huge ‘Recorded Future’ Monitoring Project
Mynd © Michal Bednarek | Dreamstime.com
Comments
Powered by Facebook Comments