
Ben Livingston er fyrrum eðlisfræðingur hjá Bandaríkjaflota sem kynnti fyrir Lyndon B. Johnson forseta á tímum Víetnam stríðsins, hvernig stýra mætti veðurfarsfyrirbærum og nýta í hernaði.
Hann fékk svo grænt ljós frá forsetanum og beitti þessari tækni til að tefja umfsvif víetnamsks og kóresks herliðs með því að framlengja regntímanum og breyta skógarstígum í forarsvað.
Livingston fullyrðir að rannsóknir og útfærsla á aðferðum við að stýra fellibyljum hafi verið forgangsmál hjá stjórnvöldum fyrir meira en 40 árum og að tæknin hafi verið orðin vel smurð á þeim tíma.
Þó þessar staðhæfingar virðist í mótsögn við hamfarir af völdum fellibylja í Bandaríkjunum sjálfum, til dæmis í New Orleans, þá má sjá hvernig sprotar þessarar þekkingar gægjast fram í fréttum af skyldum málaflokkum.
Til dæmis ákvað borgarstjórinn í Moskvu að draga úr kostnaði við snjómokstur með því að láta bara ekki snjóa í og kring um borgina.
Moscow Mayor Promises a Winter Without Snow
Eitthvað var rætt um veðurfarsstjórn í kring um Ólympíuleikana í Kína, þeir sem “hafa áhyggjur” af veðurfarsbreytingum vegna útblásturs hafa talað um að dreifa álögnum í heiðhvolið til að draga úr “hlýnun” (þotuslóðir með íblöndunarefnum, eða efnaslóðir) og fleira mætti nefna.
Nú er viðtal við kappan aðgengilegt á Youtube, þetta er skyldufag fyrir þá sem vilja vita hvað er að gerast á bak við tjöldin, auk þess að vera bara mjög skemmtilegt efni.

Comments
Powered by Facebook Comments