Versti vísindaskandall sögunnar

CC apple_pathways

“[Áhyggjur af hnattrænni hlýnun] eru versti vísindaskandall sögunnar  …Þegar fólk verður meðvitað um sannleikann, þá mun því finnast vísindamenn hafa blekkt sig.”

Þetta segir japanski vísindamaðurinn Dr. Kiminori Itoh, verðlaunaður umhverfisefnafræðingur hjá IPCC (International Panel on Climate Change) stofu Sameinuðu þjóðanna.

IPCC er kynnt af stórstraumnum sem vísindasamfélag, en það er ekki svo.  Það er pólitísk maskína dulbúin sem vísindastofnun, þar sem stjórnendur stýra niðurstöðum með því að vitna í þá vísindamenn sem syngja af nótnablaðinu, en hunsa hina.  Þetta gefur almenningi þá röngu mynd að vísindamennirnir séu meira og minna sammála um fullyrðingar varðandi þátt koltvísýrings sem menn losa í hitabúskap jarðar.  Því fer fjarri.

Skýrsla sem pöntuð var af minnihlutanum á Bandaríkjaþingi árið 2008 skartaði 650 vísindamönnum sem hröktu hið svokallaða samhljóða álit (consensus) um að hnattræn hlýnun væri vegna losunar manna á koltvísýringi út í andrúmsloftið. 

Á bak við biblíu Gorefólksins, Samantekt IPCC fyrir stjórnvöld frá 2007, eru aðeins 52 vísindamenn, ásamt stjórnmálamönnum og diplómötum.  Þessi samantekt var raunar skrifuð áður en vísindamennirnir fylltu svo í kaflana.  Þar má sumstaðar finna efni í algerri andstöðu við samantektina, en nótnablaðsvísindamennirnir spiluðu hinsvegar með og voru samhljóma samantektinni forskrifuðu.

Af þeim 650 vísindamönnum sem gerðu skýrsluna fyrir Bandaríkjaþing árið 2008 eru margir sem eru tengdir IPCC, en eru ósammála opinberu niðurstöðu þeirrar pólitísku vélar.

Byggt á blaðsíðu 183 í bók Davíðs Icke, Human Race Get Off Your Knees – The Lion Sleeps No More.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: