Versti flokkurinn: Guðmundur Steingrímsson

Nú í vikunni tilkynnti erfðaprins no. 1, Guðmundur Steingrímsson, stofnun nýs stjórnmálaflokks.  Ekki er vitað hvað flokkurinn á að heita og því ætla ég að skýra hann versta flokkinn.  Einnig eru margir ekki vissir um fyrir hvað Guðmundur og flokkurinn standa fyrir.   En gefum nú Guðmundi tækifæri til útskýra stefnumál sín.

Um fólkið í nýja flokknum:

Ég verð ekki var við annað en að fólkið sem er að koma í nýja flokkinn sé svona um það bil á þessari línu. Frjálslynt, Evrópusinnað og umhverfissinnað.” ,”… forystufólk í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórar fyrirtækja og stofnana, fjölmiðlafólk, lögmenn, verkalýðsforystufólk, listafólk og bara alls konar fólk. ”

“Er það ekki stefna að vilja klára aðildarviðræður, að vilja taka upp aðra mynt, að vilja selja raforku hærra verði og græða þar með á orkuauðlindunum loksins,”

Meira um orkumál landsmanna  og OR frá 2007:

“Ekki er öll vitleysan eins. Maður er að reyna að vera sammála Sjálfstæðisflokknum hérna, en þá þarf hann endilega að snúast í hring í kringum sjálfan sig…

Þekkingu OR verður best komið í verð í samvinnu við einkaframtakið. Þar höfðu Sjálfstæðismenn rétt fyrir sér. Hið opinbera og einkageirinn eru samtvinnuð hvort sem okkur líkar betur eða verr í þessu máli. Einkageirinn er kominn með áhuga á jarðvarmavirkjunum. Í gerð þeirra er hagnaðarvon auk þess sem þær þjóna umhverfismarkmiðum.”

Bara þessi litlu dæmi sýna það og sanna að Guðmundur Steingrímsson vill einkavæða orkuauðlindir landsmanna og hækka raforkuverð.  Væntanlega til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og tryggja landsmönnum öllum sambærileg verð og gerast verst á meginlandi Evrópu.  Versti flokkurinn er því réttnefni.

 

 

 

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments