Verkfræðingur sannar gagnleysi nektarskima

Ísraelskir öryggissérfræðingar höfnuðu nektarskimunum, bandarískur vísindamaður og vildarvinur flugfélaganna ákvað að rannsaka ástæður þess.
Jon Corbett verkfræðingur og penni á TSA Out of Our Pants! vefsíðunni hefur gengið lengra en margir þora þegar kemur að því að sanna gagnleysi nektarskima TSA. Hann hafði séð fregnir frá Ísraelskum öryggissérfræðingum um að nektarskimarnir væru gagnlausir, að hæglega væri hægt að flytja nóg sprengiefni framhjá þeim til að granda júmbó breiðþotu.
Þó Ísraelar vildu í framhaldi ekkert með nektarskimana hafa að gera, þá stöðvaði það ekki ábatasöm öryggisviðskipti í Bandaríkjunum.
Corbett sagði þetta hafa setið í sér sem vísindamanni sem ferðast mikið. Hann las sér til um báðar tegundir skima, nektarskimana og gömlu málmleitarhliðin. Hann komst að þeirri niðurstöðu að hægt væri að flytja góss í gegn um nektarskimana með því einfaldlega að bera það til hliðar við líkamann, þannig að það beri ekki í ljósann bakgrunn nektarmyndarinnar, heldur í dökkann bakgrunn sem er til hliðar.
Hann lét ekki þar við sitja, heldur hóf að smygla allskyns málmhlutum í hliðarvasa sem hann saumaði á skyrtu sína. Það skjalaði hann svo með falinni myndavél og hér að neðan má sjá afraksturinn.
Youtube hefur sýnt þjónustulund sína við yfirvöld með því að takmarka aðgang að myndbandi Jons, þó það sé raunar bara fréttamyndband með engri nekt, ofbeldi eða öðru sem ætti að leiða til ritskoðunar af hálfu fyritækisins. Aðgangur að því er takmarkaður einungis af pólitískum ástæðum, af því það er gagnrýnið á TSA og vinnubrögð stofnunarinnar.
Mynd © Eric Gevaert | Dreamstime.com
Lyklar:nektarskimar, tsa








