
Hann er 94 ára og hefur unnið að verkefninu í 50 ár. Með útgáfu seinni Zeitgeist myndarinnar og efnahagshörmungunum fékk hann loksins þá kynningu og stuðning sem verkefnið þurfti.
Jacque Fresco og Roxanne Meadows voru gestir sænska jaðarútvarpsþáttarins Red Ice Creations þann 15. júlí síðastliðinn. Þau eru hugsjónafólk sem hefur unnið áratugum saman við að gefa hugmyndum sínum um draumaheiminn líf. Þau segjast ekki hafa fengið fé úr spena elítunnar, heldur hafi þau unnið “venjuleg” störf og notað afrakstur þeirrar vinnu til að fjármagna smíði á líkönum og útgáfu efnis. Engir útgefendur fengust fyrir efnið þeirra og því þurftu þau að gefa það sjálf út. Þau keyptu einnig myndvinnslubúnað og eyddu tíma og fé í að byggja líkön, taka myndir, skrifa handrit og bækur, hanna hugmyndir. Það tók til að mynda 2 ár að smíða líkön og undirbúa 15 mínútna kvikmyndabút.
Þessi hugsjónastörf unnu þau áratugum saman, með lítilli hvatningu frá samfélaginu, þar til Zeitgeist Addendum var gerð og gefin út 2. október 2008. Þá small allt. Jarðvegurinn er frjór, milljarðar manna um allan heim skilja nú, á misdjúpan hátt, að sú þjóðfélagsgerð sem við höfum lifað í er að renna sitt skeið á enda. Milljónir af þessum milljörðum finnst þessi staðreynd nógu athyglisverð og nógu mikilvæg til að ráðstafa einhverjum hluta frítíma síns í að skoða hvað er bilað í núverandi kerfi og hvað geti tekið við. Hinir halda bara áfram að grilla og sóa tilfinningum sínum og orku í fótbolta, smástirni og hefðbundið hægri / vinstri þras.
Í Zeitgeist Addendum er fyrri hlutanum eytt í að fara yfir vandamálin og skýra til dæmis hvernig peningakerfið er svindl og getur aldrei annað en aukið misrétti og óréttlæti. Hvernig núverandi hagkerfi byggir á skorti. Það er einfalt að sjá að það er rétt. Ef vara er framleidd í slíku magni að enginn skortur er á henni, þá er hún ekki mjög arðbær. Þess vegna endar nútíma “frjáls verslun” alltaf í Öskjuhlíðarbandalögum um að koma á falinni einokun og tilbúnum skorti.
Seinni hlutinn kynnir svo Venus verkefnið sem lausn á þessum vandamálum.
Það eru margar góðar hugmyndir sem tengjast Venus verkefninu. En á hinn bóginn, sú hugmynd að búa til kerfi þar sem hugumstórir menn hafa vit fyrir búfénaðinum er engan vegin ný. Hún er rótin að núverandi hagkerfi og peningakerfi.
Í viðtalinu spyr sænski útvarpsmaðurinn varlega út í þann aur sem helst hefur verið slett á hugmyndina og það er gaman að heyra svör þeirra hjúa við þeim. Nafnið Venus hefur til dæmis verið verkefninu fjötur um fót hjá fólki eins og mér, vegna tengsla þess við launhelgar og trúfélög. Þau vísa þeim ávirðingum á bug og segja nafnið einfaldlega sprottið frá heimkynnum sínum, Venus sýslu í Bandaríkjunum. Ekki gengur þeim alveg eins vel að varpa af sér mannræktarslettunni, því þegar Henrik spyr þau út í hverjar þeirra hugmyndir um hve margir geti lifað á jörðinni séu, þá svara þau ekki, heldur reifa málið með orðræðu sem gæti verið ættuð af Georgíu leiðsagnarsteinunum.
Fresco er nú 94 ára gamall og þau Roxanne eru á kynningarferð um Evrópu, þar sem þau kynna Venusarverkefnið. Áætlun þeirra gerir ráð fyrir að koma við hjá okkur á Íslandi og halda kynningu þann 18. september næstkomandi. Enda eru nú 1.059 íslendingar skráðir í Zeitgeist hreyfinguna, sem Venusarhjúin lýsa sem armi aðgerðasinna í verkefninu.
Hvort sem við erum sammála útfærslu þeirra á draumalandinu eða ekki, þá verður þessi kynning áreiðanlega einn af hápunktum ársins hér á Íslandi, menningarlega séð.
Meiri upplýisngar:
Í bókalista Zeitgeist manna er að finna bækur eftir B.F. Skinner. En ekki þessa þó, Walden Two. Hún er þó kannski heppilegra lesefni, því þar reynir Skinner að gæða útópíuríki lífi, og gæti hæglega verið leið fyrir Venusarverkefnið til að komast á koppinn án þess að fletja allt kerfið okkar út og heimta að allar eignir allra gangi þegar í stað til draumalandsins hf. Hljómar það alræðislega? Það er einmitt það sem mér datt í hug, strax og ég horfði á seinni hluta Zeitgeist Addendum.
Viðtalið: http://www.redicecreations.com/radio/2010/07jul/RIR-100715.php
“Það eru margar góðar hugmyndir sem tengjast Venus verkefninu. En á hinn bóginn, sú hugmynd að búa til kerfi þar sem hugumstórir menn hafa vit fyrir búfénaðinum er engan vegin ný. Hún er rótin að núverandi hagkerfi og peningakerfi.”
Já, Peter Joseph og Jacque Fresco eru meðlimir Zeitgeist hreyfingarinnar en ekki stjórnendur. Fresco kemur með margar góðar hugmyndir sem hann gerir sér grein fyrir að þurfi að útfæra og breyta og þar koma að málinu hver sem vill taka þátt. Allar góðar hugmyndir eru vel þegnar og meðlimir Zeitgeist hreyfingarinnar eru meðvitaðir um að það getur einhver komið með allt aðra hugmynd sem er “betri”: Þess vegna eru allir hvattir til að kynna sér vel verkefnið og taka þátt hvort sem þeir eru leiknir eða lærðir.
Þannig til að leiðrétta miskilning þá gengur hugmyndin ekki út á að búa til kerfi sem er óhagganlegt og óbreytanlegt. Og ekki heldur að hugumstórir menn hafi vit fyrir búfénaðinum. Hugmyndin er að búfénaðurinn hafi vit fyrir sjálfum sér.
Sá sem skrifar þessa ágætis grein gefur í skyn að hann viti út á hvað hugmyndir Venus verkefnisins ganga út á með ofangreindum fullyrðingum. Hvers vegna gerir hann það? En ég vona allavega að mér hafi tekist að leiðrétta miskilninginn
Svá góðr
0