Veltu hitakössum og börnin dóu

Það eru nokkur ár síðan fyrra flóastríðið var háð.  Það tók tíu þar til fyrir tilviljun komst upp um hrottalegar blekkingar og stjórn á almenningsáliti með töfrum fjölmiðla.  Höfum við lært eitthvað?

Hér fyrir neðan er 5 mínútna myndband, það byrjar á fráhrindandi textasíðu, textinn er góður, en óþarfur, bíðið bara þar til hann fer og njótið svo 5 mínútna ómengaðrar sögustundar, sögunnar um það sem raunverulega gerðist. 

Það eru samtök uppgjafarhermanna sem framleiða þetta smámyndband.  Þeir komu líka að gerð myndarinnar Beyond Treason , eða verra en landráð, en hún fjallar um það algera sinnleysi, sem stjórnvöld sýna mannslífum, meira að segja (og kannski sérstaklega) lífum hermannanna sem þjóna þeim.

Fjalla RÚV eða Bylgjan um þessa hlið stríðsins?  Nei, þar er opinbera skýringin alltaf rétta skýringin, jafnvel þegar hún reynist gjörólík sannleikanum.  George Orwell, réttu nafni Eric Blair, var innanbúðarmaður í breska ríkissjónvarpinu, þegar það var enn á barnsskónum.  Hann var ekki að skálda þegar hann skrifaði Last Man, síðasta mennska manninn, sem svo var endurskírð 1984.  Hann var að lýsa áhrifum sjónvarpsins og baktjaldamakkaranna á þjóðfélagið.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,