Smiley face
mgk.100w

Vélbyssu Kelly handtekinn í kringlunni

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Fólk, Stjórnun

Rapparinn Vélbyssu Kelly frá Cleveland var handtekinn um helgina í South Park kringlunni Strongsville, Ohio, eftir að hafa skipulagt skyndimúg aðdáenda með aðstoð samfélagsvefja.

Carlson Baker öðlaðist viðurnefnið Machine Gun Kelly vegna leikni sinnar við að rappa hratt.  Hann útskrifaðist úr gaggó 2008 og fræðgarsól hans reis á landsvísu árið eftir þegar hann fór hringinn um miðvesturríkin.  Helsta slagorð hans er “Reimaðu helvítis skóna.”

Fyrr í vikunni hafði MGK notað samfélagsvefi til að mæla sér mót við aðdáendur, mest ungt hvítt fólk,  í kringlunni. 

Þó uppákoman væri friðsamleg, kappinn fór úr að ofan og stóð uppi á borði á stjörnutorgi kringlunnar til að taka nokkur dansspor og baða sig í aðdáun múgsins, þá ákváðu öryggisverðir að láta handtaka Vélbyssu Kelly vegna þess að þeir höfðu áhyggjur af öryggi hans, eða kannski bara að múgurinn gerðist ofbeldisfullur og færi ránshendi um iPod búllur kringlunnar.

Tengt:

Skrækjandi stelpur hræða kringlugesti

Ungt partífólk breyttist í mótmælamúg

Stórslysaheimur

Lyklar:

Gullvagninn

Miðaldra fjölskyldumaður sem sinnir jaðarblaðamennsku í frístundum. Hóf ritferilinn á moggablogginu í ágúst 2007, en skipti yfir á Kryppu þegar vefritið var stofað í janúar 2010.

Skrípó