
Chupacabra, mynd CC Shalom
Þegar Prince George spítalinn varð reyklaus, þá streymdi starfsfókið út í nærliggjandi skóg til að fá sér smók. Þá varð það vart við furðulega skepnu sem enginn gat nefnt.
Joe Livermore röntgentæknir segir dýrið einhverja blöndu af keingúru, hundi og rottu. Auk þess finnst sumum að hausinn sé eins og á dádýri. Rófan er rottuleg.
Í upphafi tóku starfsmenn myndir af dýrinu á farsíma sína, en svo var sett upp gildra með afgangi úr hádegismatnum sem beitu, kjúkling og afgang af kínamat.
Þau nefndu dýrið Prins Chupa, eftir goðsagnakenndu dýri sem kallast Chupacabra.
“Ég vissi ekki hvað við ættum að gera við hann,” sagði Livermore, “Ég veit ekki hvað þetta var. Fólk sagði það vera ref, dádýr, hund.”
Svo sleppti hann bara goðsagnadýrinu.
Fréttastofan veit heldur ekki hvað þetta var.

Comments
Powered by Facebook Comments