Bretland aðlagar sig að breyttu samfélagsformi. Með hnignun og yfirvofandi hvarfi millistéttarinnar er þörf á breyttum áherslum í samfélaginu. Bókasöfn loka, skólum fækkar um 10%, sundlaugum um 21%, spítölum og heilsugæslum um 32%, íþróttaklúbbum og öðrum klúbbum fyrir millistéttafólk fækkar um 55%.
En í staðin koma góðgerðaverslanir (Góði hirðirinn og Rauðakrossbúðir) sem hefur fjölgað um 20%, risamarkaðir sem hefur fjölgað um 25%, veðmöngurum hefur fjölgað um 39%, bílalúguveitingastöðum hefur fjölgað um 53% og svo súlustaðir, sem hefur fjölgað gríðarlega.
Það sem kemur á óvart, en rímar við Ísland, er að lögreglustöðvum hefur fækkað um 8%. Almenna lögreglan á Íslandi sætir einnig niðurskurði. Skýringin er vafalaust sú að í nýrri heimsmynd er minni þörf fyrir lögreglu, en meiri fyrir sérsveitir, óeirðalögreglu, böðla.
mynd: eatantsnotturtles

Comments
Powered by Facebook Comments