Ef þú ert búinn að skoða Arnarhreiðrið í suður Þýskalandi, Auswitch útrýmingarbúðirnar og aðrar minjar um foringjann, þá er hér eitthvað nýtt fyrir þig að skoða í sumar.
Varúlfabyrgið var stjórnstöð fyrir hernað nazista á austurvígstöðvunum, miklu flottari en hreysi bin Ladens.
Byrgið var byggt með þrælavinnu stríðsfanga og gæti hafa náð allt að 7 hæðir niður í jörðina. Þar var allt til alls fyrir stríðsherrana, foringjaklúbbur, sána, líkamsræt, sundlaug og svefnskálar. Ofanjarðar voru einnig þónokkrar trébyggingar, sem meðal annars hýstu spilavíti.
Hitler er talinn hafa heimsótt staðinn þrisvar sinnum, og sundlaugin hans er nánast það eina sem eftir er ofanjarðar, en annað var jafnað við jörðu í mars 1944.
Varúlfabyrgið er í nágrenni úkraínsku borgarinnar Vinnytsia, næsti flugvöllur er í 160 km fjarlægð (KBP Kiev Borispol). Lufthansa flýgur frá Frankfúrt til KBP, flugið tekur aðeins 2 klukkustundir og 45 mínútur og kryppu tókst að finna sæti á um 37.000 kall, fram og til baka frá Frankfurt. Góða skemmtun.
http://www.vinnitsa-ukraine.info/vinnitsa-transport.htm

Comments
Powered by Facebook Comments