Varist pimpaðann perravagninn

Á sama tíma og nektargláp á flugvöllum á undir högg að sækja frá mannréttindasamtökum og vildarvinum flugfélaganna, þá kynna hugumstórir menn í öryggisiðnaðinum stærri hugmynd.

Fyrirtækið Bandarísk vísindi og verkfræði með höfuðstöðvar í Billerica, Massachusetts, hefur selt 500 færanlega nektarskima í sendibifreiðum til Bandaríkjastjórnar og erlendra stofnanna.  Þessum vögnum má aka um og á sama tíma skimast þeir þá inn fyrir ytra byrði bifreiða, gáma, fólks og annarra hluta sem verða á vegi þessara draumavagna gluggagægja. 

Í kynningarmyndbandi segir að vagnarnir séu sérstaklega umhverfisvænir, og varpi ekki meiri geislun á fólk að jafnaði nema eins og það fengi í fimmtán mínútna þotuflugi.  Varla á það við um þá sem eru svo óheppnir að stoppa við hið þessara ósýnilegu geislagjafa á rauðu ljósi, meðan fulltrúarnir virða fyrir sér nýuppfærða C bolla frúarinnar og kameltá dótturinnar.  Slík lostalota við hlið svartklæddra fulltrúa á hvítum hesti öryggisins myndi væntanlega jafnast á við nokkra tugi heimsókna á röntgendeildina, enda þarf væntanlega nokkuð mikinn djús í svona vagn, svo hann geti skimað heilu strætisvagnana eða innihald gáma.

Lesið meira um draumadjobbið fyrir perrana á vefsíðu Forbes.  Þar má einnig finna kynningarmyndband fyrir þessa dusilvagna.

Full-Body Scan Technology Deployed In Street-Roving Vans

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments