Var bensínbomban æfing á vegum lögreglu?

Dularfull bensínsprenging veldur miklum hávaða og fjölmiðlastormi, en markmið og gerendur eru óljósir.
Vefur Lögreglunnar hefur eftirfarandi um málið að segja:
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni og hvítri sendibifreið í tengslum við rannsókn hennar á sprengju sem fannst neðst á Hverfisgötu í Reykjavík í gærmorgun. Maðurinn er talinn hafa komið með sprengjuna í miðborgina. Hann er jafnframt talinn hafa ekið umræddum bíl sem er af gerðinni Renault Kangoo.
Staðreyndir málsins
Þriðjudaginn 31.1.2012 milli 6:30 og 7 um morgunin sprakk einhvers konar ílát með bensíni á gangstétt á Hverfisgötunni, við norðvesturgafl Hverfisgötu 4, en ekki voru aðrar byggingar nálægar, stór lóð Stjórnarráðsins og svo Arnarhóll voru á aðra kanta þeirrar staðsetningar sem ílátinu var valinn staður.
Sprengingin var hávær, en engar skemmdir virðast hafa orðið á gangstétt, veggjum, rúðum, farartækjum eða fólki, enda umferð lítil þetta snemma dags.
Einhverjir tilkynntu hvellinn, en lögregla brást ekki við fyrr en tveimur klukkustundum síðar, þegar þeir mættu með sprengisérfræðinga í bumbubúningum og lítið eða ekkert notaðann róbóta, sem sprautaði smá vatni á sprengjuna til að hægt væri að sýna róbótann og bumbubúningana í fréttum.
Lögreglan virðist hafa einn mann “grunaðann”, en birtar hafa verið myndir af einhverri þúst og svo litlum sendiferðabíl sem númerið sést ekki á.
Hver er tilgangurinn verknaðarins?
Fjölmiðlar hafa kjamsað vel á þessu atviki, degi eftir er það enn fyrsta frétt í sjónvarpi. En það er ekkert að frétta. Engin fórnarlömb, engar skemmdir, engin pólitísk yfirlýsing, enginn gripinn.
Hver gerir svona?
Skömmu eftir hrun fór pólitískur aðgerðasinni mikinn undir nafninu “Skap Ofsi”. Um nokkra mánaða skeið tókst honum að sletta rauðri málningu á bíla og hús ýmissa áberandi leikara á sviðinu í aðdraganda hrunsins. Hann var hetja fólksins, hann útdeildi dálitlu réttlæti þar sem dómsstólar og ráðamenn brugðust (og bregðast enn). Enginn meiddist og tjónið var ekki stórvægilegt, allavega ekki fyrir fólk með aðgang að kúlulánum.
Það var tilgangur í aðgerðum Skap Ofsa. Hann tók ákveðna aðila fyrir og í ákveðnum tilgangi. Að minna fólkið á að einhverja ætti kannski að draga til ábyrgðar. Að vekja von og baráttugleði hjá fólkinu.
Bensínbomberinn er hinsvegar glórulaus minnipokamaður sem tekst ekki einu sinni að valda skaða á gangstéttarhellu, og enginn getur áttað sig á hver tilgangurinn var í aðgerð hans. Var hann að ráðast á Stjórnarráðið? IMF í bakhúsi? Eða bara Óbyggðanefnd, sem er til húsa á Hverfisgötu 4?
Hvernig kemst einhver upp með þetta?
Hverfisgatan er kannski ekkert Pentagon, en þó eru eftirlitsmyndavélar út um allar trissur í miðborginni. Enda hefur lögreglan birt myndir bæði af manninum og bílnum. Það eru bara algerlega ónothæfar myndir. Er þetta toppurinn á eftirlitsþjóðfélaginu? Bestu myndirnar úr nútíma eftirlitsmyndavélum?
Hann keyrir í burtu á Reno Kango bíl fyrir klukkan sjö að morgni þriðjudags. Það eru sárafáir á ferli. Hvert fer hann? Framhjá fjölda annarra eftirlitsmyndavéla, og vafalaust í gegn um einhverja eftirlitspunkta, þar sem myndavélar á vegum kerfisins taka sérstaklega myndir af bílnúmerum. Ekki móðublimpa eins og þeir birtu, heldur skýrar myndir af númerum, teknar með myndavélum sem miðað er af kostgæfni til að grípa bíla þegar þeir aka framhjá um þá einu leið sem er fær, á götunni.
Hver græðir á aðgerðinni?
Það er ljóst að bensínbomban var glórulaus ruglaðgerð út frá pólutískum markmiðum. Ef gerandinn var argur út af hruninu eða stjórnmálaleysi, af hverju gerði hann þá ekki árás á banka eða stjórnarbyggingar? Hvað hefur Óbyggðanefnd gert af sér?
En bomban var ekki alveg áhrifalaus. Hún hafði mikil áhrif. Fólk er hugsanlega hrætt eftir þetta. Óöruggt. Vill að ríkið verndi sig betur.
Það krefst úrbóta.
Hvað mun ríkið bjóða upp á?
Problem, reaction, solution!
Eru íslenskir baktjaldatittir loksins farnir að beita sömu brögðum og félagar þeirra í heimsveldinu? Skapa vandamál, bíða eftir kröfum um úrbætur og koma þá fram með lausnir sem eru óvinsælar og hefðu ekki annars komið til greina.
Eru það forvirku heimildirnar, hryðjuverkadeild í lögreglunni og aukið eftirlit sem verða ávextir þessa ofvaxna kínverja?
Hver var þá sprengigaurinn?
Ef um ‘problem, reaction, solution’ aðgerð undir fölsku flaggi er að ræða, þá er líklegt að tilræðismaðurinn sé í innsta hring íslensku leyniþjónustunnar, sérsveitarmaður, sem hugsanlega hefur fengið þjálfun í Bandaríkjunum.
Samkvæmt erlendum forskriftum, þá eru slíkar aðgerðir oftast hjúpaðar æfingu hjá opinberum aðilum, einhvers konar æfingu í viðbrögðum við hryðjuverkum, eða almannavá. Það gæti þá líka skýrt af hverju lögreglan brást ekki við atvikinu fyrr en eftir tvær klukkustundir. Hin venjulegi lögreglumaður hefur þá bara haldið að tilkynningin tengdist æfingu sem stóð yfir.
Tilgangur æfinganna er einnig sá að ef eitthvað fer úrskeiðis, ef vegfarandi myndi slysast til að þekkja “sprengigaurinn” eða aðrar snuðrur koma upp í leikritinu, þá er hægt að útskýra allt heila klabbið með því að um æfingu var að ræða.
Var bensínbomban kannski velheppnuð æfing hjá lögrelguríkinu?
Mynd PD Kristel Rae Barton
Lyklar:forvirkar heimildir, sprengja








