
Týndi sauðurinn?
Teitur Atlason virðist hafa verið að vitna í biblíuna í dularfullri færslu sinni sem hvarf af síðum DV í morgun.
Teitur segir í færslunni, sem horfin er af síðu DV en draugur lifir enn á Google og í biðminni (cache) á tölvum lesenda:
Allir verða að sætta sig við og samþykkja með einu eða öðru móti aðgerðir stjórnvalda. Þær eru jú framkvæmdar í okkar nafni hvort sem okkur líkar betur eða verr.
Með þessu er sterklega gefið í skyn að okkur beri skylda til að segja já í kosningunni um Icesave klafann sem fram fer á morgun.
Biblíufróður lesandi Kryppunnar sendi okkur ábendingu um að þarna væri Teitur í raun að vitna í biblíuna, reyndar í uppáhalds vers Hitlers:
Rómverjabréfið 13. kafli, vers 1 og 2:
Skyldur við yfirvöld
1Sérhver maður hlýði þeim yfirvöldum, sem hann er undirgefinn. Því ekki er neitt yfirvald til nema frá Guði, og þau sem til eru, þau eru skipuð af Guði. 2Sá sem veitir yfirvöldunum mótstöðu, hann veitir Guðs tilskipun mótstöðu, og þeir sem veita mótstöðu munu fá dóm sinn.
1Let every soul be subject unto the higher powers. For there is no power but of God: the powers that be are ordained of God. 2Whosoever therefore resisteth the power, resisteth the ordinance of God: and they that resist shall receive to themselves damnation.
Í stuttu máli, það eru engin yfirvöld nema Guð, stjórnvöld eru því skipuð af Guði og þú ferð til helvítis ef þú hlýðir þeim ekki.
Það kemur ef til vill ekki á óvart að guðfræðingurinn og trúleysinginn Teitur vitni í biblíuna þegar honum hentar, en verra er að einn mest áberandi prestur vantrúarsöfnuðarins, Matthías Ásgeirsson, skuli gjamma á Björn okkar Hilmarsson í athugasemd við færslu sem bendir á hversu öfugsnúin slík hugsun er. Þó Björn hafi ef til vill ekki áttað sig á trúarlegu inntaki skilaboðanna, þá eru þau jafn andstæð trú á lýðræðið og frelsi fólks frá kirkju og yfirvöldum, eins hugmyndum trúaðs fólks um að Guð sé réttlátur og líði ekki ranglæti.
Þessi uppáhaldsvers Hitlers gætu raunar freistað Matta og hann tæki sig óneitanlega vel út í munkahempu. Því Matti og kirkjan eru sammála um þessa kreddu, og þetta virðist eitt af grunngildum Matta, sem er oftast heilshugar sammála yfirvöldum.
Hann hefur nú tekið sé frí frá því að skrifa opinbera dagbók um það hvað hann er duglegur að spila fótbolta eða elda mat, og skrifar nú heitt fyrir því að samþykkja Icesave. Nú getur hann bætt við, ef hann lætur freistast, þið farið beint til helvítis ef þið hafnið Icesave!

Comments
Powered by Facebook Comments