
Mynd CC KellBailey
Þó menn deili enn um hvort Dick Cheney hafi nokkurntíma átt hjarta sem sló, þá er ekki um það deilt að heilt ár er liðið síðan þessi fyrrum varaforseti Bandaríkjanna sem samþykkti pyndingar og elskaði hleranir varð að uppvakningi án hjartsláttar.
Ágústfoli kryppunnar er enginn annar en Dick Cheney, svellkaldur karl sem elskar pyndingar og hleranir og hefur engan púls.
Karlinn fékk ígrætt vélhjarta í júlí fyrir ári síðan, tæki sem dælir blóðinu jafnt og þétt í stað þess að spýta því í slögum eins og náttúruleg hjörtu gera, og því hafa flestir sæborgar af þessari tegund engan púls.
Í viðtali við MSNBC hræddi Cheney blaðamann með brellu eins og klipptri út úr Dawn of the Dead. Hann fjarlægði batteríið úr vélhjarta sínu sem þá fór að pípa aðvörunarhljóðum.
Margir eiga erfitt með að venjast því að hafa engan púls, en Cheney er í essinu sínu sem uppvakningur og hefur gengið um sem lifandi lík nógu lengi til að fylgja á eftir ævisögu sinni, My Time, þar sem hann rifjar kinnroðalaust upp stuðning sinn við pyndingar, innrásina í Írak og forvirkar hleranir án sérstakra heimilda.
Íhaldsmaðurinn og dálkahöfundurinn George Will skrifar í Atlantic Wire: “Fimm hundruð sextíu og fimm blaðsíður og einföld afsökunarbeiðni hefði verið við hæfi á sumum þeirra.” Cheney var í forystu með lygunum um gjöreyðingarvopn Saddams, hann leiddi þjóðina í tilhæfulaust stríð þar sem fjöldi Bandaríkjamanna og Íraka lét lífið, en hann skrifar hundruðir blaðsíðna um afrek sín og sér ekki eftir neinu, né telur sig skulda neinum afsökunarbeiðni.
Þetta er alvöru siðblindingi, svona karlar koma blóðinu á hreyfingu í hjörtum ungmeyjanna. Hann mun vera harður elskhugi og kunna að meta röff ástarfundi. Ég sá myndbrot á Youtube þar sem kynlífi með Cheney var lýst.
Er þetta ekki draumur allra stelpna? Ískaldur gæi með engan púls og fullt af peningum. Sjúk sál í sjúklegum líkama.

http://www.infowars.com/dick-cheney-one-year-as-a-walking-zombie/

Comments
Powered by Facebook Comments