Upptaka með Jóni Sigurðssyni finnst og komin á netið

Ótrúlegar fréttir voru að berast inn á borð Kryppunnar.  Jón Sigurðsson, landsfaðir lýðveldisins Íslands, lést ekki 1879 eins og talið var.  Óvéfengjanlegar sannanir fylgja, en furðulegheitin eru bara rétt að byrja!

Jón Sigurðsson er almennt talinn hafa látist 7. desember 1879 eftir langvinn veikindi.  En í yfirlýsingu sem Kryppunni hefur borist er því haldið fram að Jóni Sigurðssyni hafi verið hjálpað af leynireglu og framúrstefnumönnum í læknavísindum, sem sviðsettu svo dauða hans og útför, en Jón lifði svo fábrotnu munkalífi meðal reglubræðranna og beið þess tíma er lýðveldið Ísland myndi þurfa aftur á baráttumanni fyrir sjálfstæði og sjálfræði þjóðarinnar.

Sá tími er kominn.  Danasinnar og sambandssinar vaða nú uppi og eru að taka lýðveldið yfir innanfrá, með vélabrögðum og baktjaldamakki.

Þó þessar fréttir séu í meira lagi ótrúlegar, þá þýðir ekkert að vera með vantrú, því skotheldar sannanir fylgja sögunni.

Reglubræðurnir, sem kalla sig “Jónsmenn”, hafa nú þegar staðfest að Jón Sigurðsson er á lífi.  Sú staðfesting fannst á internetinu á gamalli vefíðu Gullvagnsins.  Þar segir:

Við staðfestum hér með að Jón Sigurðsson er á lífi, hann lést ekki 1879, heldur fékk aðhlynningu með nýrri tækni og hefur síðan þá lifað fábrotnu munkalífi og fylgst með þróun lýðveldisins, svo hann gæti komið því til hjálpar þegar danasinnum og sambandssinnum yxi kryppa um hrygg.

Undir þetta rita “Jónsmenn”.

Að auki fylgir myndband, sem sýnir landsföðurinn skoða málefni dagsins í einhverju hreysi, þar sem hann stundar fræðistörf við fábrotinn kost. 

Skúbb

Sjáið myndbandið sjálf hér að neðan.  Landsfaðirinn skoðar myndbönd og ljósmyndir frá samtímanum og æfir ræðutækni.  Eitthvað segja þeir líka um að íslenska Jóns hafi ekki alveg fylgt þróuninni síðustu öldina, kannski vegna þeirrar einangrunar sem hann hefur þurft að lifa við.  Fleiri upptökur eru á leiðinni frá Jónsmönnum, þar sem við fáum að heyra í landsföðurnum tjá sig um sambandssinnana og helstu þjóðmálin í dag.

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,