Uppreisn er óhugsandi

Stuttur kafli úr útvarpsþætti Alan Watt frá því á jóladag 2007.

Alan: Ég hef lesið úr sumum verkum stóru aðilana sem gáfu okkur hluta af þessu kerfi, stórra þungaviktarmanna á toppnum sem móta framtíð okkar.  Þeir eru meðlimir í risavöxnum gáfnabönkum og stofnunum  sem fá fulla fjármögnun, hrikalega, óhefta fjármögnun, til að koma þessum breytingum á fyrir hönd ríkjandi minnihlutans.  Þar var enginn hæfari en lávarðurinn Bertrand Russell, sem jafnvel tókst að fá stóra hópa vinnandi fólks með sér því hann talaði eins og Indjánarnir sögðu, “með tveimur tungum.”  Hann hafði eitt sett af ræðum fyrir verkalýðinn sem studdu hann og annað sett fyrir sína pólitísku jafningja.

Hann sagði: “Margt fólk myndi fremur deyja en að hugsa.  Og raunar gerir það.“  Það sagði hann.  Hann má líka alveg segja sannleikann, því við eigum í miklum vandræðum með að kyngja jafnvel þessum einföldu staðreyndum.

Hann sagði: “Ég tel að hópsálfræði verði það svið sem mun verða þýðingarmest fyrir stjórnmál.  Vægi hennar hefur vaxið gríðarlega með vexti nútímaaðferða við áróður.  Þar er áhrifamest sú aðferð sem nefnd er ‘menntun’.  Trúmál hafa áhrif, en þau fara dvínandi, meðan áhrif fjölmiðla, kvikmynda og útvarps fara vaxandi.”

Alan: Hann hefði getað bætt sjónvarpi í þennan lista, en þetta er skrifað árið 1953.

“Við getum vonast til þess að innan skamms muni hver sem er geta sannfært alla um hvað sem er, svo framarlega að hann nái í viðfangið nógu ungt og fái nægt fé og búnað frá ríkinu.”

Alan: Þetta er maðurinn sem barðist fyrir leikskólunum!

Þó að þessi vísindi verði rannsökuð af kostgæfni, þá verður aðgangur að þeim takmarkaður af festu við stjórnunarstéttina.  Almenningur fær ekki að vita hvernig sannfæring hans er framleidd.  Þegar tæknin hefur verið fullkomnuð, þá munu allar ríkisstjórnir sem hafa haft stjórn á menntakerfinu í eina kynslóð vera í stöðu til að stýra þegnum sínum af öryggi án þess að þurfa heri eða lögreglu.”

Alan: Þetta er úr The Impact of Science on Society.  Í sömu bók á síðum 49 og 50 segir hann:

Vísindaleg samfélög eru enn að slíta barnsskónum.  Það má búast við að framfarir í lífeðlisfræði og sálfræði muni færa stjórnvöldum mun meiri stjórn á huga einstaklinga heldur en nú næst, jafnvel í alræðisríkjum.  Fitche benti á að menntun skuli miðast við að brjóta niður frjálsan vilja, þannig að þegar nemendur útskrifast, þá séu þeir ekki framar hæfir til að hugsa eða framkvæma annað en það sem skólameistararnir myndu hafa viljað.”

Alan: Meira úr sömu bók:

Mataræði, sprautur og fyrirmæli verða notuð samhliða…”

Alan: Athugið nú, ég endurtek þetta því þetta er sannleikur.  Mjög áríðandi.

Mataræði, sprautur….”

Alan: Þar meinar hann bólusetningar, öll úrræði eru notuð.

“…og fyrirmæli verða notuð samhliða frá unga aldri til að framleiða þá skapgerð og þá tegund skoðana sem yfirvöld telja ákjósanlega og öll alvöru gagnrýni á yfirvöld verður sálfræðilega ómöguleg.”

Alan: Mataræði, sprautur og fyrirmæli.

“Smátt og smátt með hreinræktun [aðalsins] mun mismunur á  meðfæddum eiginleikum stjórnendanna og þegnanna vaxa og verða svo mikill að þeir verða nánast tvær ólíkar tegundir.  Uppreisn lýðsins verður jafn óhugsandi eins og samstillt uppreisn kindastofnsins gegn neyslu á kindakjöti.”

Alan: Í bókinni Scientific Outlook  frá 1931 skrifar hann:

Á sama hátt munu hinir vísindalegu stjórnendur sjá venjulegu fólki fyrir einni tegund menntunar og hafa svo aðra tegund fyrir þá sem verða handhafar vísindalegs valds.  Ætlast verður til þess að venjulegir menn og konur séu auðsveip, iðin, stundvís, sinnulaus og ánægð.”

Alan: Við skulum endurtaka þetta:

Á sama hátt munu hinir vísindalegu stjórnendur sjá venjulegu fólki fyrir einni tegund menntunar og hafa svo aðra tegund fyrir þá sem verða handhafar vísindalegs valds.  Ætlast verður til þess að venjulegir menn og konur séu auðsveip, iðin, stundvís, sinnulaus og ánægð.  Af þessum eiginleikum verður ánægjan væntanlega talin mikilvægust.  Til þess að skapa hana, munu allar rannsóknir í sálgreiningu, atferlisfræðum og lífefnafræði verða virkjaðar.  Allir drengirnir og stúlkurnar munu læra frá unga aldri að vera samvinnuþýð, það er að segja, að gera nákvæmlega það sama og allir hinir eru að gera.”

Alan: Hafið þið tekið eftir því í fari fólks í kring um ykkur?  Það eru allir að gera það sama og allir aðrir.

Þessi börn verða lött í að sýna frumkvæði, og þau verða vísindalega vanin af óhlýðni án refsingar.  Fyrir utan tryggð við Heimsríkið…”

Alan: Heimsborgarríkið.  Heimsborgaraverðlaunin sem Rockefeller stofnunin veitir.

“…og innan eigin raða, þá verða meðlimir stjórnarstéttarinnar hvattir til að vera djarfir og fullir frumvkæðis.”

Alan: Þeir þurfa að viðhalda sjálfsbjargarviðleitni sinni.  Mikilmennin eru öll sammála um það.  Þeir láta ekki breyta sér og sýnum.  Við hin þurfum ekki á sjálfsbjargarviðleitninni að halda, því ríkið tekur allar ákvarðanir fyrir okkur – allir þessir skriffinnar og sérfræðingar.

Í þeim fáu tilvikum þar sem drengur eða stúlka er komin fram yfir þann aldur þar sem stétt er ákvörðuð sýnir greinilega getu til að ná vitsmunalegum jöfnuði við stjórnendurna…”

Alan: Hér er mikilvægi hlutinn:

“…þá vandast málin og leysa þarf úr þeim af gætni.  Ef ungviðið er reiðubúið til að yfirgefa sín fyrri tengsl og gefa tryggð sína iðrunarlaust til stjórnendanna, þá má eftir viðeigandi athuganir og próf færa það upp um stétt, en ef það sýnir einhverja sorglega samstöðu með sínum fyrri félögum…”

Alan: Það þýðir hans eigin stétt, hans eigin fólk.

…þá verða stjórnendurnir með semingi að komast að þeirri niðurstöðu að ekkert sé hægt að gera fyrir hann eða hana, nema senda hann í dauðaklefann áður en hann notar sína óöguðu vitsmuni til að koma af stað uppreisn.  Þetta verður erfið skylda fyrir stjórnendurna, en ég tel að þeir muni ekki hlaupast frá þeirri skyldu.”

Alan: Og þar hefur hann aldeilis rétt fyrir sér.

Þetta er úr bókinni Scientific Outlook frá 1931.  Dagskráin hefur ekkert breyst og það sem hann talar um þarna var þegar virkt í samfélaginu þegar hann skrifaði það og sagði við vonum hitt og við vonum að þetta verði niðurstaðan.  Þetta kerfi var þegar orðið virkt.  Þannig skrifa þeir um hluti og kerfið er sannarlega það sama um allan heim nú til dags, nánast fullkomnað.

ALAN WATT    BLURB (i.e. Educational Talk):

KNOWLEDGE FIGHTS FEAR

IN THE COMING YEAR

December 25, 2007

Mynd © Paul Moore | Dreamstime.com
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments