Ungfrú Oklahoma er spök

Ungfrú Oklahoma var spurð erfiðrar spurningar í keppninni Ungfrú Bandaríkin sem haldin var í fyrradag.  Elísabet Woolard var spurð hvort hún styddi innflytjendalöggjöf Arizona, númer SB 1070.  Salurinn púaði þegar Óskar Nunez, dómari í keppninni spurði þessarar spurningar, enda skrítið að blanda þessari pólitískt kynþáttahlöðnu spurningu inn í keppni sem ekki á að vera pólitísk.  Fox News spyr lesendur sína hvort Nunes hafi reynt að skjóta ungfrúna niður með þessari spurningu, og 92% telja að ekki sé hægt að svara henni án þess að gera einhverja reiða.

Elísabet endaði í öðru sæti keppninnar, en hún er sigurvegarinn að mínu mati, fullkomlega dæmt út frá fordómum, enda hef ég ekki skoðað hina gripina eða hlustað á þær spurningar sem beint var til þeirra, né svör þeirra.  Ástæðan er einföld, hún svaraði spurningunni afar vel, hélt stillingu sinni og bætti ímynd þessara keppenda, allavega í minni bók.

Svarið hennar var eftirfarandi:

“Ég er afar fylgjandi réttindum fylkja til að stjórna eigin málum.  Ég tel það vera eitt af því sem gerir Bandaríkin dásamleg.  Svo ég tel það algerlega í lagi fyrir Arizona að setja þessi lög.”  Hún bætti því við að hún væri samt á móti mismunum á grundvelli kynþátta, og því sæi hún báðar hliðar þessarar deilu.

http://www.infowars.com/miss-usa-contestant-supports-arizona-illegal-immigration-law/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments