Ungt fólk í stjórnmálum er oft eldheitt og ástfangið af skoðunum sínum. Báknið burt sagði bleiudeildin í Sjálfstæðisflokknum. Áratugum seinna þegar þeir voru komnir úr bleiunum og í jakkafötin breyttist slagorðið í “báknið kjurt”. Úr herbúðum rótækra vinstrimanna hafa fleiri slagorð ómað. T.d. “Ísland úr NATÓ og herinn burt.” og líka “Róttæklingar allra landa sameinist”. Í dag eru þessir ofurrótæku vinstrimenn orðnir fínir Seðlabankastjórar eða komnir með einkabílstjóra með hatt. Stjórnmálasagan er því skrítin og engin virðist meina það sem hann predikar.
Í grein sem birtist í gær 11.8.2010 þar sem ég lýsi ótrúlegri atburðarrás við Laugaveginn kom fram að þrjár dömur reyndu að taka af mér nýja myndavél. Þeim líkaði ekki að ég hefði tekið eina mynd af þeim án þeirra leyfis.(Sem þarf ekki samkvæmt lögum) Þær vissu reyndar ekkert hvað ég hafði tekið en heyrðu góðan smell og sáu vélina. Þegar ég gerði mig ekki líklegan til að verða við fyrirmælum þeirra og eftir smá handalögmál var ég snúinn niður í götuna af tveimur hjálpsömum lukkuriddurum.
Nú hefur verið borið kennsl á eina konuna og er hún róttæk að eigin sögn með vinstra grænt hjarta og situr eða sat í stjórn UVG. En hún er ekki bara róttæk heldur friðarsinni fram í fingurgóma. Í grein sem hún ritar ásamt fleirum síðasta vor segist hún vera í flokki með friðarstefnu, kvenfrelsi og náttúruvernd að leiðarljósi. En ekki nær náttúrverndin til Bjarna á Laugaveginun og kvenfrelsið þýðir greinilega frelsi til þvingana og lögbrota. Friðarstefnan er síðan bara grín eins og “báknið burt” hjá Davíð og félögum.
Þórhildur Halla Jónsdóttir heitir konan og hefur líka látið fyrir sér fara í hagsmunabaráttu heimsspekistúdenta. Veturinn 2008 kvartaði hún sárlega undan ólýðræðislegum og einhliða vinnubrögðum Háskóla Íslands fyrir hönd samnemanda sinna. En skólinn vildi þrengja að Höllu og félögum með lokun á svokallaðri Soffíubúð. Í það skiptið var setuverkfall látið duga og hefði ég kunnað henni bestu þakkir ef hún og félagar hennar hefðu setið á sér.
Kannski er málið aðeins flóknara en ég gerði mér grein fyrir. Þórhildur hefur nefnilega verið að kenna ungu fólki i VG fundarsköp og mótmæli. Þarna hef ég því sennilega lent í smá sýnikennslu hvernig alvöru mótmælendur á Íslandi athafna sig þegar þeir sjá litla kalla með myndavélar. Og hver veit nema herramennirnir hafi leitað fundarskapanna. En ég get fullvissað þá um að þau eru ekki aftan á mér.
Þegar hallar á Höllu rís hún upp og lætur í sér heyra. 2007 lofar hún að skaðbrenna hnakkana á meintum óvinum sínum. Neðar í ræðunni heimtar hún svo enga mismunum vegna útlits, kyns, ætternis, þjóðernis eða þeirra lífshátta sem þeir kjósa sér. Vonandi er ég ekki sá eini sem sér mótsögnina í þessum skrifum. Þetta ætti eiginlega frekar að vera enga mismunum nema: og síðan langur listi með m.a. köllum með hatta, hægrisinnuðum uppum, hamingjusömum hórum og litlum köllum með myndavélar.
Öllum geta orðið á tæknileg mistök. Ef ég hef þessa manneskju fyrir rangri sök bið ég hana afsökunar og verð fljótur að leiðrétta þessa grein. Annars vil ég afsökunarbeiðni og tvær pizzur frá VG. Eina fyrir ólögmætar þvingunaraðgerðir fulltrúa þessara samtaka og hina fyrir alla bláu marblettina. Ég kann því illa að líkjast bláum strumpi eða lukkudýri Sjálfstæðisflokksins.


Fólk sem tekur þátt í opinberu stjórnmálastarfi gerir sig að opinberum persónum. Þegar einhver beitir ofbeldi á almannafæri er það frétt. Þegar opinber persóna beitir annan ofbeldi á almannafæri er það enn frekar fréttnæmt.
Það er enginn að níðast á þessari ungu konu nema hún sjálf. Hún hegðaði sér heimskulega, ásamt vinkonum sínum. Hún á varla framundan mikinn frama í stjórnmálum, ef hún ætlar að stunda það að berja alla sem taka mynd af henni á almannafæri. Hvort hún er VG eða öðrum flokki finnst mér hins vegar aukaatriði. Sjálfstæðismenn berja líka ljósmyndara, sbr. Árna Johnsen.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
30
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
18
Af hverju segja allir að ekkert hefði gerst ef þessi Björn hefði bara stoppað og rabbað við þær. Það hefði sjálfsagt það sama gerst ef hann hefði stoppað og neitað að afhenda vélina eða eyða myndinni. Þær voru ekki að biðja hann um kurteislegar rökræður heldur að skoða síðustu mynd í vélinni ef ég skil þetta rétt sem hann vildi ekki.
Það fór ekkert framhjá þeim að gaurinn vildi ekki sýna þeim síðustu mynd eða þær héldu að hann væri heyrnarlaus eða útlenskur eins og Þórhildur lýsir þessu.
Ekki myndi ég reyna að stöðva heyrnarlausan útlending og fara síðan í átök til að taka af honum myndavélina.
Dettur fólki ekki í hug að það getið fengið spark í rassinn eða högg í síðuna við svoleiðis aðfarir. Þessar stelpur eru greinilega róttækar í öllu sem þær gera.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
20
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
4
Halló BB og takk fyrir inleggið.
Að mínu mati er þessi pistill gerður til að lítillækka stúlkuna í þeim tilgangi til þess að vinna rökræðurnar í því hvort hann hafi haft rétt fyrir sér í þeirra máli um atvikið sem gerist á Laugaveginum.
Hvort hann sýnir vitsmunalega fram á andstæður á skrifum hennar fornum kemur hreinlega því máli ekkert við og ég sé engan tilgang á bakvið þennan pistil nema sem Ad hominem árás enda inniheldur hann ekkert málefnalegt varðandi það atvik.
Hann hefur lagalegan rétt á að hundsa þær og taka mynd en öll þessi atburðarrás hefði ekki einu sinni orðið ef hann hefði bara spurt leyfi til að taka myndina og eða bara stoppað og rætt við þær í rólegheitunum, enda væri það bara almenn kurteisi.
Annars er mér nokk sama um þetta mál, finnst þetta vera meira “hann sagði, hún sagði” mál. Báðir aðilar segja að hvor hafði slegið til hvors annars þannig það er ekkert hægt að dæma upp á milli þegar maður var ekki vitni að þessu sjálfur. Leyfa þessu máli bara að fara til dómstóla, allavega ef ég væri rændur og laminn á Laugaveginum þá það fyrsta sem ég myndi gera er að hringja á lögregluna og kæra.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
13
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
9
Nei Hrói, greinin hjá honum er ekki byggð á argumentum ad hominem.
Þú ert að misnota það rökfræðihugtak illilega.
Ef hann hefði sagt; “já, hún er Vinstri Græn, þessvegna segir hún þetta!”, þá væri um slíka rökvillu að ræða.
Það gerir hann ekki, hann bendir með vitsmunalegum hætti á mjög miklar andstæður í gömlum ræðum hennar.
Sem er í sjálfu sér algengt hjá mannfólkinu, við erum full af andstæðum, en í þessu tilviki eru þær í það minnsta mjög áhugaverðar í ljósi þess sem gerðist á Laugaveginum.
Svo missir þú af aðalpunktinum þegar þú segir að hann eigi að biðjast afsökunar; fyrir að hafa hundsað þær og birt ljósmyndina á netinu. En hvorugt af því er glæpur. Allir hafa rétt á því að hundsa fólk. Enginn hefur aftur á móti rétt á því að beita annað fólk ofbeldi þótt það fólk sé með hjartað fullt af heilögum eldmóði og sannfært um að það geti bjargað heiminum í krafti vöðva sinna eða vöðva hjálparmanna sem það kallar til, nema lögreglan og þá aðeins í valdi laganna. Lögin eru síðan búin til af venjulegu fólki á Alþingi sem við höfum áhrif á og lögreglan starfar eftir þeim lögum.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
17
Ah seðlaveskið, skil ekki hvernig ég missti af því.
Svá góðr
0
Hrói: Þú þarft nú ekki að leggja meira á þig en að lesa umræddan pistil til að fá svar við þeirri spurningu..
Heit umræða. Hvað finnst þér?
5
Ég ætla svo sem ekkert að blanda mér inní þetta mál, en þessi pistill hér að ofan er ekkert annað en argumentum ad hominem. Hefur ekkert með málið að gera á neinn hátt..
Kannski ættu bæði málsaðilar að byðjast afsökunar, Björn fyrir að hunsa þær, henda upp myndinni á netið og skrifa þessa málefnalusu árás hér að ofan, og þær fyrir að verða svona pirraðar yfir að það hafi verið tekin mynd af þeim og ganga svona hart að manninum í kjölfarið. Það hefði verið svo auðvelt að forðast þessa atburðarrás að það er eiginlega bara asnalegt.
Annars bara smá forvitni, í fyrri pistli kemur fram að þú hafir verið rændur, hverju var eiginlega rænt? Þú ert enn með myndavélina ekki satt?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
7
Takk fyrir að segja okkur frá þessu.
Búið að vera magnað að fylgjast með þessu. Fyrst var maður ekki viss, þegar maður sá fyrstu færsluna þína, það var ekki fyrr en hún kom sjálf fram og skammaðist sín ekki neitt að maður áttaði sig á því í hverskonar heimi hún lifir í. Hún er yfir aðra hafin. Hún er svo góð og með svo mikla réttlætiskennd að þegar henni finnst eitthvað að þá hefur hún leyfi til að grípa til ofbeldis. Hún er yfir aðra hafin. Hún er yfir lögin hafin. Hún er svo góð.
Og nú ertu hægt og hægt að fá stuðningsmenn hennar yfir þig með níð herferð sína.
Þeir munu níða þig niður eins og þeir eigi lífið að leysa. Enda ertu fyrir þeim og þau eru yfir þig hafin.
Magnað.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
39
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
10
hahaha er rosin ad springa ut???
Heit umræða. Hvað finnst þér?
9
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
8
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
22
Ég myndi ráðleggja þér að kæra þessa komma fyrir líkamsárás og rán.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
26
Þessar tvær frásagnir fara ágætlega saman. t.d. viðurkennir talíbanaprinsessan að hún veittist að myndatökumanni, þreif í hönd hans og reyndi að hindra að hann kæmist leiðar sinnar. Þær viðurkenna s.s. að hafa viðhaft ógnandi hegðun.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
28
Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
14
Snærós – hvers konar komment er þetta? Í stað þess að taka upp hanskann fyrir gömlum félaga, þá ferðu að afsaka þig og halda því fram að hún sé nú ekki í VG lengur…
Svona virka stjórnmálaflokkarnir víst, og ungliðahreyfingarnar líka. Ímyndarherferðir og auglýsingamennska efst á lista forgangsröðunnar.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
18
vinstri
graenir eru bara graeningjar a ollum svidum! Audvita ljuga vinstri graenir, enda illa uppalid skitapakk upp til hopa…
Heit umræða. Hvað finnst þér?
20
Sæll – ég skora á þig að kynna þér málin betur. Á heimasíðu UVG http://www.vinstri.is getur þú séð hver stjórn ungliðahreyfingarinnar er.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
7
Mér sýnist greinin hjá Birni og þessari Höllu passa ágætlega saman. Eins gott að ein hélt að Björn væri heyrnarlaus útlendingur annars hefði þetta getað endað með dauða.
Vinsælt innlegg. Gott eða slæmt:
20
Ef þú ætlar að halda þessu kýtumáli áfram þá væri nú réttast að þú takir afstöðu til framburðar einnar af stelpunum sem birtist á pressunni í dag – hvað er satt, hvað er logið og hvað vantar í frásögnina:
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/atok-a-laugarvegi-um-habjartan-dag-hann-sparkar-i-fotinn-a-henni-og-slaer-hana-utan-undir
Heit umræða. Hvað finnst þér?
12