Bill Still á Íslandi – Undraheimar fjármálakerfisins
Bill Still flytur fyrirlestur um fjármálakerfið og kynnir kvikmynd sína „The Secret of Oz“ miðvikudagskvöld 2. júní kl. 20 í sal Hússins, Höfðatúni 12. Allir velkomnir.
Bill Still hefur rannsakað fjármálakerfið, sögu þess og starfsemi í yfir 20 ár. Hann meðframleiddi hina víðfrægu þriggja og hálfs tíma heimildarmynd „The Money Masters“ árið 1995 þar sem saga fjármálakerfisins er rakin ítarlega í ljósi hagsmunatengsla. Óhætt er að segja að þessi mynd hafi breytt heimsmynd margra og veitt þeim djúpa innsýn inn í fjármálakerfið og bankapólítík.

Bill Still hyggst einnig ræða við þingmenn, hagfræðinga og fólkið í landinu. Hann hvetur Íslendinga til þess að fara nýjar leiðir í fjármálum og vill nota tíma sinn hér sem best til þess að kynna slíkar hugmyndir auk þess að kynnast landi og þjóð. Hann er heillaður af nýju stjórnmálalandslagi í kjölfar sveitastjórnarkosninga og er vongóður um að ný stjórnmálaöfl kynni sér áhugaverðar lausnir á fjárhagsvanda þjóðarinnar.
Heimildarmyndin „The Secret of Oz“ lýsir fjármálakerfinu og styðst við myndlíkingar úr barnasögunni frægu „The Wonderful Wizard of Oz“ (Galdrakarlinn í Oz). Bókin var skrifuð á miklum umbrotatímum undir lok 19. aldar og er stútfull af myndlíkingum sem fæstir kannast við. Fjöldi þekktra efnahagsgagnrýnanda koma fram í myndinni, þ.á.m. hagfræðingarnir Peter Schiff, Nick Tideman og Michael Hudson, Ellen Brown höfundur “Web of Debt: The Shocking Truth About Our Monetary System”, fjármálarannsakandinn Byron Dale og James Robertson.
Bill Still hefur verið að kynna myndina sína í Evrópu og er núna á Íslandi. Þar sem Ísland er eitt þeirra landa sem hefur farið verst út úr skulda- og lánarugli peningakerfis nútímans vildi hann koma í heimsókn og sýna myndina sína sem bendir á galla ríkjandi kerfis og mögulegar lausnir.
Teiknimyndin Money as Debt er kjörin upphitun fyrir The Secret of Oz, tiltölulega stutt og laggóð skýringarmynd á eðli skuldapeningakerfisins.
Um „The Secret of Oz“
“The Secret of Oz is a very timely documentary at this critical point in American history. Presenting monetary history in ancient and more recent times, it exposes the systemically flawed debt-money system to which the United States and most of the world is currently enslaved.
Why should governments have to borrow money into existence from private banks (at interest) if government can simply create the money itself without debt or interest for the benefit of all citizens? Sovereign republics have a responsibility to issue debt-free money into circulation for the protection of the rights of individuals, specifically, the rights of liberty and pursuit of happiness” –Nathan’s Economic Edge
Um „Money as Debt“
„Money as Debt is a short animated documentary film by Paul Grignon about the monetary systems practiced through modern banking. The film visually demonstrates the process of money creation by private corporations (banks), illustrates the historical background of this system, and warns of its subsequent unsustainability.“
Kvikmyndasýning
Föstudaginn 4. júní í Háskólabíói í Sal 3
kl. 14:00: (upphitun) Money as Debt
kl. 15:00: The Secret of Oz
- Enginn aðgangseyrir

Slef…..
Ég vildi að ég gæti mætt, kannski reddast það, vonandi.
Svá góðr
1