
Ég skal fúslega viðurkenna að ég hélt í minni einföldu einfeldni að stjórnmál snérumst um málefni og kannski smá hagsmunapot. Fólk byði sig fram til að redda vinum og vandamönnum gulli af fjárlögum og síðan berjast fyrir einhverri sannfæringu. Í frétt sem RUV.is birtir kemur hið rétta í ljós.
Í fréttinni segir að Ögmundur verði tekinn inn í ríkisstjórnina að nýju og Jón skrítni verði landbúnaðarráðherra áfram. “Gegn loforði órólegu deildarinnar (hjá VG) um að flækjast ekki fyrir ríkisstjórninni í helstu málum.”
Stjórnmál á Íslandi snúast þá um að vera ekki fyrir. Vera ekki fyrir eigin sannfæringu, skoðunum eða vinna fyrir kjósendur og flokksmenn. Ögmundur má vera ráðherra ef hann er ekki fyrir kjósendur og ekki fyrir ríkisstjórninni.
Fyrir hverja eru ráðherrar þá ef ekki kjósendur eða sjálfa sig?
Comments
Powered by Facebook Comments