Ultra fail hjá fréttastofu

BBC sagði frá hruni Wolrd Trade Center byggingar númer 7 heilum tíu mínútum áður en það átti sér stað!

Bygging 7 er akkílesarhæll kerfisþrælanna sem vilja trúa opinberu samsæriskenningunum um 11. september 2001.  Það er svo margt við hana sem er ómögulegt að skýra, nema með því að viðurkenna að bláa höndin, höndin úr reykfylltu bakherbergjunum, að mennirnir bak við tjöldin hafi átt þátt í atburðarásinni, ýmist beint, eða allavega vitað hvað var í þann mund að gerast og verið tilbúnir með leikrit, sökudólg í helli, og fáránlega röð afleiðinga, stríð, svipting borgaralegra réttinda, alræðislegir lagabálkar, forvirkar geðþóttarannsóknir, eftirlitsnet með borgurum. 

Skoðið myndbandið, hægri smellið og notið “save as”, skráin er um 30 megabæti.

Á myndinni hér að ofan má sjá Jane Standley standa með WTC 7 í bakgrunni (hægra megin við hana), enn uppistandandi, þar sem hún segir frá því að byggingin sé hrunin.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: , ,