Tunglmyrkvi – gleðileg Yule

Í dag hoppa heiðingjarnir hæð sína í loft upp og gleðjast yfir heiðum himni og blóðugu tungli.

Ödipus, Theseus, Herkúles, Perseus, Jason, Diónýsus, Apalló, Mítra, Hórus og jafnvel Arthúr eiga sér kunnuglegar sögur um dauða, helvist í þrjá daga og upprisu frá dauðum, sem allar eiga sér sama tímaramma, tímann frá vetrarsólstöðum og þar til sólin fer að rísa á ný, upp úr 24 des.

Í “Toyóta höllinni” í Kebblavík söfnuðust grunnskólabörn saman í gær og dönsuðu í kring um jólatréð, yngstu börnin næst trénu og svo hringur eftir hring af eldri árgöngum, eins og þversnið af trjástofni með árhringana sína.  Þau dönsuðu gamlan frjósemisdans umhverfis tré sem er sígrænt og táknar þar með eilífðina, hringrás lífsins, endurnýjunina.

Gleðileg Yule

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments