Smiley face
aramot.cc.miklabraut

Topp 10 jaðarfréttir 2011

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Erlendar fréttir

Þetta eru helstu fréttir ársins að mati fréttastofu Alex Jóns

10. Occupy hreyfingin

Occupy Wallstreet hreyfingin er að sögn Alex Jóns herbragð Sórósar til að stýra óvild í garð fjármálakerfisins og beina henni á villigötur.  Hreyfingin vill meina að lausnirnar á vandanum snúist helst um að slíta aura af millistéttinni með lögboðum og upptöku eigna, í stað þess að skoða hvernig stóru ofurbankarnir eru að eyðileggja frjálsa verslun og breyta henni í einkavinavætt einokunarkerfi sem minnir helst á íslenska klíkukerfið, þar sem stjórnvöld skapa auðjöfra með því að deila eignum þjóðarinnar til “réttra” manna á spottprís, og / eða út á krít, svo þeir geti féflett þessar stofnanir og sent svo reikninginn af Icesave og öðrum afglöpum aftur til skattgreiðenda.

Athugið vandlega að alveg eins og á Íslandi, þá breytast skilgreiningarnar á millistéttinni með tímanum.  Augljóst dæmi er “hátekjuskatturinn” sem fyrst (helst á kynningarstiginu) virðist ekki ætla að snerta neinn “venjulegan” Íslending, svo þegar hann skellur á, þá hefur það breyst þannig að til að eitthvað fáist inn, þá þarf markið að vera svo lágt að margir ráfa þar inn ef þeir taka einhverja aukavinnu.  Svo á nokkrum árum hefur verðbólgan séð til þess að nú þurfa þeir lægst launuðu að borga “hátekjuskatt” af hluta launa sinna!

Þannig er það ævinlega, millistéttin er ekki óvinur láglaunafólksins, þvert á móti, það er millistéttin sem eyðir peningum í landinu og skapar vinnu, auk þess sem tiltölulega auvelt á að vera fyrir lágtekjufólk að smeygja sér upp í millistéttina, en það er nánast ómögulegt fyrir millistéttarkarla að komast upp í elítuna, nema þá með einkavinasamböndum við helspillta stjórnmálastétt.

Alex lýkur umfjöllun á þessari frétt á jákvæðum nótum, OWS virðist hafa skriðið undan þeim böndum sem áttu að stýra hreyfingunni, þannig að nú er reynt að uppræta hreyfinguna, en við vonum bara það besta.

Umfjöllun:

9. Bandalag NATÓ og al-Quaeda gegn líbískum stjórnvöldum og nú gegn sýrlenskum stjórnvöldum

Þessum atburðum voru gerð góð skil á árinu hjá Alex Jóns og einnig hér á Íslandi af Kryppa.com og svo Gagnauga.is.  RÚV og massamiðillinn var meira og minna úti á túni að bulla um friðarsprengiherferðir og flytja áróðurslummur gegn Gadd-afa.

Meðal friðaraðgerða þessa viðbjóðslega bandalags var sláturtíð á svertingjum í landinu, því blökkumenn voru áberandi meðal stuðningsmanna Gaddafa.  Er það þá nokkuð rasismi að dæma alla hörundsdökka í landinu sem “svikara” og smala þeim í bráðabirgða-útrýmingarbúðir sem settar voru upp á afgirtum fótboltavöllum og öðrum hentugum stöðum?  Varla þegar hryðjuverkamenn NATÓ gera það?  Þó þeir hafi sennilega drepið 40.000 svertingja?  Það er bara smá friðargjald, sko.  Stríð er friður.

En í landi raunveruleikans, þar eru kryppukarlar kallaðir rasistar ef þeir þola frekar saklausa athugasemd frá yfirlýstum rasista (en eyða henni ekki út) og virða þar með málfrelsi, en RÚV og stór hluti landsmanna eru hinsvegar gríðarlega virðulegt og hreinhjarta fólk, af því það lokar augunum fyrir því að konur, börn og menn séu drepin fyrir húðlit sinn, eða bara vegna þess að þau liggja vel við höggi, allt í skjóli friðaráróðurs meðan raunin er allt önnur.

Umfjöllun:

 

8. Ron Paul helst inni í forsetaslagnum

Fréttin í þessu er sú að stórstraumurinn og flokksvélar bæði repúblikana og demókrata leggjast á eitt um að sannfæra Bandaríkjamenn um að Ron Paul sé einhver grínframbjóðandi, en þrátt fyrir það er hann enn inni í slagnum.  Að auki beita “samflokksmenn” Pauls bellibrögðum, eins og að breyta kosningareglum og telja vitlaust.

Umfjöllun:

7. Virkjun FEMA fangabúðanna

Stjórnvöld vilja nú hafa starfsfólk fyrir FEMA fangabúðirnar í startholunum, þannig að þeir geti opnað þær með nokkurra daga fyrirvara.  FEMA fangabúðirnar eru dreifðar um öll Bandaríkin, geta haldið milljónum andófsmanna og annara óvina ríkisins og hafa að jafnaði góða tengingu við járnbrautakerfið, það er að segja, járnbrautaspor liggur inn í girðinguna!

Umfjöllun:

 

6. Undirbúningur stríðs við Íran

Sviðsett hryðjuverk, heræfingar í Hormuz sundi, stanslaus áróðursherferð gegn Íran og fleira.

Umfjöllun:  

5. MF Glóbal ruglið

Peningum stolið um leið og bankinn var féflettur af stjórnendum sínum og eigendum, enginn gerður ábyrgur, nema innistæðueigendur.  Geri ráð fyrir að Alex flokki þetta svona hátt af þeirri ástæðu að MF Global sýnir í raun hve bankakerfið er spillt og ótryggt, og gæti í raun fellt allt traust á kerfinu og valdið raunverulegu allsherjarhruni á fjármálakerfinu á heimsvísu.

4. Ósama bin Laden leikritið um dauða dána mannsins

CC Husar de la Princesa

Falsaðar fréttir, falsaðar ljósmyndir úr Hvíta húsinu, lygi um að múslimska siði um sjóútfarir, lygar um að Laden hafi staðið í skotbardaga við sérsveitina og skýlt sér á bak við konu sína.  Svo deyr meirihluti selateymis sex sem sá um aðgerðina í þyrlu-”slysi”, eftir að þeir fara að blaðra á ská við opinberu söguna.

Umfjöllun:

 

3. NDAA alræðislöggjöfin

National Defence Authorization Act leyfir handtökur án dóms og laga, leynifangelsi, notkun hersins gegn Bandaríkjamönnum sjálfum.  Þetta er í raun lögleiðing á herlögum sem venjulegu ástandi.

Í umfjöllun Alex um þessa frétt lætur hann vaða í þá brúnnefja vitleysinga í stétt fréttamanna sem ekki rísa upp og mótmæla ruglinu.  Þeir segja, “kannski þurfum við þessar forvirku heimildir til að herinn geti verndað okkur fyrir vondu körlunum.  Hey, ég hef ekkert að fela!”  Það segir Alex vera sambærilegt að segja, “Hei, vampíra, ég hef ekkert á móti þér.”  Vampírunni er sama, hún vill bara drekka blóð þitt.  Eða að gyðingar í Þýskalandi nazismans reyni að segja, “Hei, ég hef ekkert á móti nazistaflokknum.”  Það skiptir bara engu máli.  Væri betra að berjast heldur en að reyna að falla inn í bakgrunninn og gera ekkert.

Umfjöllun:

2. Fast and Furious svartnættisaðgerðin gegn bandarísku þjóðinni

Skaflar af embættismönnum og löggæsluliði tóku þátt í að selja glæpaöflum í Mexíkó vopn, sem svo voru notuð meðal annars gegn Bandaríkjamönnum og þar á meðal hafa lögreglumenn látið lífið vegna þessa.

Tilgangurinn var sá að ryðja veginn fyrir strangari reglum um vopnaeign og skráningu, en Bandaríkjamenn njóta einna mesta frelsis í heiminum þegar kemur að vopnaburði og vopnaeign.  Það ætti að hljóma fáránlega fyrir flesta, en margir hér á Íslandi skilja ekki málið.

Að halda því fram að mexíkönsk glæpasamtök kaupi sér vopn á byssumörkuðum í Bandaríkjunum er fráleitt.  Þau vopn sem almenningur er að kaupa sér eru skammbyssur, rifflar og haglabyssur.  Glæpalýðurinn er að mestu vopnaður hervopnum, sjálfvirkum árásarrifflum, sprengivörpum, þyrlum, brynbílum og fleira í þeim dúr.

Bandarísk stjórnvöld urðu sem sé uppvís að skaffa glæpalýðnum vopn af verra taginu, alvöru drápstæki, í þeim tilgangi að sverta saklaust hobbí Texasbúa og annara frelsiselskandi föðurlandsvina, sem vilja eiga hefðbundin vopn til að verja sig og sína nánustu, eða til að stunda veiðar.

Umfjöllun:

1. Fukushima hryllingurinn

5 af sex risakjarnakljúfum TEPCO í Dai-ichi verinu, Fukushima, bráðnuðu og spúðu geislavirkum úrgangi út í loftið, en ekki síður út í sjóinn.  Yfirvöld í Bandaríkjunum og Kanada, löndunum sem eru áveðurs ríkjandi vinda og strauma frá Japan, brugðust við þessu með því að hækka öryggismörk fyrir fjölda geislavirkra efna í mat og vatni gríðarlega, sum voru hækkuð í mörgþúsund sinnum fyrri gildi.  Til að bæta um betur, þá hættu þau einnig að mæla geislavirkni í mörgum tilfellum þar sem áður var fylgst með geislun.

Verið spúir enn óþverra út og stærðargráðurnar eru slíkar, að sjálft Kyrrahafið sé að breytast í geislavirkann pytt.  Til að bæta um betur, þá rekur nú risastórar breiður af braki sem sumt getur verið geislavirkt að landi á vesturstörnd Bandaríkjanna.

Jafningjarýnd vísindagrein sem birtist í Journal of Health Services áætlar að 14.000 Bandaríkjamenn hafi látist af völdum úrfellisins frá Japan á fyrstu 14 vikunum eftir slysið.

Umfjöllun Kryppu:

 

http://www.youtube.com/watch?v=eMVG7gcQOKs&feature=g-all-u&context=G2c965f9FAAAAAAAAFAg

http://www.youtube.com/watch?v=tpn97lxzgO0&feature=g-all-u&context=G23e0d62FAAAAAAAAFAQ

Lyklar:, , , , , , , , ,

Gullvagninn

Miðaldra fjölskyldumaður sem sinnir jaðarblaðamennsku í frístundum. Hóf ritferilinn á moggablogginu í ágúst 2007, en skipti yfir á Kryppu þegar vefritið var stofað í janúar 2010.

Skrípó