Andstaða gegn bólusetningum eykst

Paul Joseph Watson,
Infowars.com, 30.8.2010

Hnattræn uppreisn gegn lífshættulegum bóluefnum breiðist út um leið og dæmi um lamandi sjúkdóma, mjúkdráps-aukaverkanir og jafnvel tafarlaus dauðsföll koma í ljós.

Tilfellum lamandi sjúkdóma, múkdráps-aukaverkana og jafnvel tafarlaus dauðsföll í kjölfar bólusetninga um allan heim hefur fjölgað gríðarlega á sama tíma og yfirhylmingar bresta og fleiri og fleiri gerast tortryggnir um hvað sé eiginlega verið að sprauta þá með af heilbrigðisyfirvöldum sem sýnt hafa að ekki er treystandi.

Það rof í tjaldi yfirhylminga sem er að myndast mun letja fleiri foreldra frá því að láta bólusetja börnin sín á næstu mánuðum, en nú er svínabóluefnið komið saman við venjulegu flensusprautuna.  Nýleg könnun á vegum Rasmussen sýnir að 52 prósent Bandaríkjamanna höfðu áhyggur af öryggi bóluefna en nú eru haustannir að hefjast í skólum sem margir hverjir ‘krefjast’ þess að nemendur séu bólusettir svo þeir fái skólavist.

Hnattræn upreisn gegn hættulegum bóluefnum er í uppsiglingu í kjölfar margra tilfella þar sem börn hafa hreinlega látið lífið við bólusetningu.

Bólusetningarverkefni í Indlandi gegn mislingum var stöðvað eftir að fjögur börn dóu nánast undireins og þau voru bólusett.  “Fjögur börn dóu nokkrum mínútum eftir að þau voru bólusett gegn mislingum og fengu Vitamín A lausn á laugardag,” segir í frétt MedGuru.

Í indverskum dagblöðum má lesa frásögn sjónarvotta.  “Börnin fjögur voru sögð hafa misst meðvitund fljótlega eftir bólusetningu og vitni bera að augu barnanna hafi ranghvolfst svo aðeins sá í hvítuna, um leið og þau fengu flogaköst,” segir Blitz.

Trylltir bæjarbúar brugðust við hörmungunum með uppþotum, réðust á heilbrigðisstarfsmenn og tóku lækna á vegum stjórnvalda í gíslingu.

Sérfræðingum í heilbrigðiskerfinu og læknum með tengsl við stjórnvöld var einnig kennt um þegar hætt var bólusetningu við H1N1 eftir að í ljós kom 300 prósenta aukning á tíðni taugasjúkdómsins drómasýki meðal barna og yngra fólks sem hafði verið bólusett á síðustu sex mánuðum.

Kari Lankinen, yfirlæknir hjá Finnish Medicines Agency, segir lækna hafa verið meðseka í að fela tengslin milli svínabóluefnisins og drómasýki, og að þeir hafi gert það til að vernda starfsferil sinn.

Á sama tíma hafa áhyggjufullar mæður stúlkna sem hafa hlotið skaða af eða dáið af völdum Gardasil bóluefnisins sett upp vefsíðu sem skjalar sannleikann um það hvernig Gardasil hefur drepið eða meitt þúsundir ungra stúlkna síðan það var sett á markað árið 2006.  Þúsundir unglinga hafa þolað alvarlegar aukaverkanir og að minnsta kosti 71 hefur dáið af völdum bóluefnisins síðan HPV bólusetningar hófust fyrir fjórum árum síðan.

Lesið meira:

http://www.infowars.com/vaccine-deaths-and-injuries-skyrocket-as-cover-up-implodes/

Mynd CC Global X
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,