Tindastóll, guðdómlegt lið

Konan mín kom til mín með staðarblaðið þar sem slagur bæjarliðsins við Tindastól var auglýstur.  “Þetta lítur út fyrir að vera eitthvað sem þú hefur áhuga á,” sagði hún og benti á merki Tindastóls.  Mikið rétt, enn eitt dæmið hvernig lærisveinarnir eru allstaðar að störfum, einhversstaðar bakvið, ekki formlega, en svo vill til að þeir eru í réttum stöðum hér og þar og allir vinna þeir saman að stóra verkefninu.

Merki Tindastóls er í raun þrír þríhyrningar, tveir benda niður og einn upp og er sá innan hinna tveggja.  Að auki er furðulegt T skrifað yfir tvo af þessum þríhyrningum, en endapunktar Tésins eru örvar eða þríhyrningar út af fyrir sig.

Eitthvað er kunnuglegt við þetta þema, prófum að snúa við:

Er þetta ekki líkt “Triple Tau”?

 

Jim Marrs segir í bók sinni Codex Magica:

Þrefalda Táin.  Enn ein sönnun um djöfullega rót Jahbuhlun svikanna er tákn þreföldu Táarinnar, sem er æðsta tákn hinnar Konunglegu Bogagráðu (Royal Arch degree) [samfrímúraranna / skoska siðarins].  Gert af þremur samtengdum Tá táknum (T) þá eiga þessi þrjú að tákna þrennu helgra gyðinglegra krafta konunga, presta og spámanna.  Með örðum orðum, fyrir frímúrarana er þrefalda Táin þýðingarmesta táknið eða merkið fyrir Konunglega Bogafrímúrara.  Það táknar frímúrarann sem hefur náð annaðhvort 7. stigi í York siðnum eða 13. stigi skoska siðarins, opinberun á eiginleikum guðdómsins eða hinnar heilögu þrenningar með því guðlasti að lýsa sjálfann sig hinn stórkostlega “Ég er sá sem ég er,” og með því tengja sig við orð Satans úr aldingarðinum, “þið munið öll verða sem guðir.”     

Ætli Vantrú viti af þessu, eða er þeim sama um trúboð og túariðkun aðra en kristna?

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments