
Kryppunni var að berast hugvekja, frá manni sem virðist vera bróðir í Frímúrarareglunni, eða segist að minnsta kosti vita meira um frjálslegt múrverk heldur en við, kettirnir.
Hér á eftir fer erindið, óbreytt, nema því var skipt upp í málsgreinar, til að auðvelda lestur.
Það hefst með kveðju til Björns Hilmarssonar og gengur út á skrif hans um heimsókn í frímúraramusterið og svo myndbandi frá Hr. Prest-konungi Vestursins.
Þú ert ekki svaraverður, en ég skal samt svara þér.
Þetta er ekki neinn nazistakross, ekki það að nazistar hafi átt einhvern sérstakan rétt á neinum þeim táknum sem þeir stálu, swastikan er mikilvægt tákn í Hindúisma, Búddhisma og heiðni víða um heim, og var meira að segja notuð af gyðingum líka eins og hakakrossar á eldgömlum húsum bera vitni. En krossinn sem þú kallar nazistakross, og er dálítið líkur járnkrossi Þjóðverja, er eldgamalt tákn, notað af nánast öllum menningarheimum, síðan í fyrndinni, og hefur verið notaður af kirkjunni öldum saman.
Flest tákn finnast líka í náttúrunni ef betur er að gáð. Sphinxinn veit enginn hvað táknar, hann er eldeldgamall, eldri en sjálft Egyptaland eins og við þekkjum það, og því allrar athygli verður, dularfullur og fagur, og mjög eðlilegt frímúrararnir, sem eru menn sem leita sannleikans, skuli heiðra hann.
Annars hafa hlutirnir merkingu í augum þess sem horfir, fallegur innri maður sér fegurð hlutanna…
Sverð hafa margvíslega merkingu sem hefur ekkert með ofbeldi að gera. Aðeins yfirborðslegur maður sér sverð og hugsar strax “ofbeldi”. Vitur og glöggskyggn maður horfir dýpra og sér eitthvað annað.
Frímúrarar eru menn sem leita sannleikans. Þú leitar hans ekki, berð ekki virðingu fyrir honum og elskar hann ekki, og fullyrðir því mikið um hluti sem þú veist ekkert um.
Vídeóið ósmekklega og lágkúrulega frá rapparanum tengist reglunni svo nákvæmlega ekki neitt. Hann er kannski að reyna að fá áhorf frá þínum líkum.
Það eru annars til fjölmörg misleynileg “leynifélög” í þessum heimi, sem fást við ólík markmið. Ég hef líklega talað fyrir daufum eyrum en skil við þig með þann sannleik að flest í heiminum skilur þú hvorki né veist nein deili á, frekar en þegar þú varst barn.
Það væri betra sálarheill þinni að viðurkenna það en veslast upp af hroka og blekkingum um hvað þú veist, og hvað þú veist ekki.
Jesú hvað?, spyrð þú svo, afþví að frímúrarar notast við sverð í táknmáli sínu.
Þannig talar fávís maður og hunsar um leið að helsta trúartákn kristinnar trúar, hvers verndari Íslenska Frímúrarareglan er, sú er kennd er við “sænsku leiðina”, notar sem sitt helsta tákn pyntingartól nokkurt sem kallast kross og sést á öllum kirkjum og víðar.
Afhverju gerir kirkjan það? Að baki þess búa að sjálfsögðu fjöldamargar og hyldjúpar merkingar, sumar augljósar öllum, aðrar aðeins þeim sem leita að þeim á réttan hátt og vilja kynnast dýpri hliðum sinnar eigin trúar og komast í nánara samfélag við Jesús. Sama gildir um notkun annarra tóla sem stundum hafa verið notuð til dráps, þó þau hafi margvíslega góða merkingu líka, sem notuð eru í mannbætandi starfi, innan sem utan kirkjunnar. Ég hef sagt nóg við þig.
Kryppan þakkar þessum bróður bræðra sinna kærlega fyrir, og hvetur hann til að hafa samband í staff@kryppa.com, ef hann vill spjalla meira.
Það er margt í því sem hann segir, þvert á eigin spár um þröngsýni okkar, sem er alveg rétt, eða að minnsta kosti geymir fræ að sannleik, er hálfsannleikur. En frímúrarar eru einmitt meistarar í hálfsannleik, eins og þeir sem hafa farið upp um nokkur stig ættu að vita. Sannleikurinn í gær er misskilningurinn í dag, nýjar túlkanir á hverju stigi, smám saman beygist hugurinn og bræðurnir færast nær “ljósinu”, þeir skilja merkingu þess að vera hreinlyndir, dyggir, heilir og saklausir…
…og að lokum, ef þeir eru ‘verðugir’, sætta sig við að guð þeirra er…
Lúsifer!

“Einn gamall kall að djóka”? Ég sé núna (loggar sko) að þú, og sá sem skrifaði pistilinn, eruð jú “einn” og sami maðurinn, en þú ert krakki, kannski ertu samt þrítugur, en óþroskaður og ef þú ert frímúrari, þá ertu einn af “blástúku” mönnunum, þeir sem koma saman, borða og kjafta, en fá aldrei nein alvöru leyndarmál, heldur kosta rekstur reglunnar og hlaupa í hringi í allra lélegasta svaðinu.
Þegar þú hefur lesið þetta svar, þá ætti ég að fjarlægja þessa grein, ég póstaði þessu í þeirri trú að um alvöru mann væri að ræða, en ekki internettröll.
Einn gamall kall að djóka eru sem sagt öll sönnunargögnin. Þvílíkt slúðurblogg og lágur siðferðistandard. Væri fyndið eins og gamli gaurinn að gera at í fólki eins og þér sjálfum, kominn með leið á fordómum þess og ranghugmyndum og bulli, ef þú bara værir að grínast. Sá gamli er bara rosa húmoristi og þyrfti bara að bæta við hann væri sko geimvera!!! Frímúrarar hafa góðan húmor fyrir bæði sjálfum sér og öllu ruglinu í paranoid liði með álpappírshatta um þá.
Svá góðr
2