Þrælaþjóð í stuði

Patrick Henningsen, ritstjóri 21st Century Wire skrifar á síðu sinni:

Enn eitt dæmið um sálfræðilega aðlögun á vegum stórstraumsmiðilsins er hvernig útsending Time Warner á mánudagskvöld frá, að því virtist, fremur dauflegum NBA íþróttaþætti, var notuð til að varpa dýrð á og gera létt grín að pyndingastarfssemi á vegum ríkissins og hraðvaxandi fjölda nýlegra dauðdaga tengdum notkun á Taser stuðbyssum.

Þáttur TNT, Innanbúðar hjá NBA, frá því 4. maí síðastliðinn, skartaði innslagi sem nefnt var “Flottræfils tölfræði Eyjós”, þar sem íþróttagalarinn Ernie “E.J.” Johnson, Charles Barkley og Kenny Smith grínuðust með það hve sniðugt væri að stuða hvern annan með Taser ™ búnaði.  Innslagið hófst á sýningu ljósmyndar frá AP þar sem lögreglufulltrúi notar Taser ™ stuðbyssu til að stöðva aðdáanda sem hljóp inn á völlin í Phillies leik á mánudagskvöld, en undir sýningunni óskaði meðstjórnandinn Charles Barkley lögreglunni til hamingju með að “teisa rassinn á honum.”

Atvikið sem Barkley vísaði til var í raun hryllilegt sjónspil þar sem lögreglan gerði atlögu að 17 ára aðdáanda hafnabolta, meðan völlurinn söng “Teisið hann!  Teisið hann!”, í tryllingi sem minnir á illræmt hringleikahús Rómar, þar sem svölun þorsta almennings í blóðíþróttir var eitt sinn helsta atriðið á leikseðlinum.

Í þriðja hluta Innanbúðar hjá NBA (sem þú getur séð hér), skemmti Tim Kiely, framleiðandi þáttarins, áhorfendum með langri myndasýningu af óhugnanlegum myndum sem sýna lögreglu og herlið við stuðstörf með Teisibyssunum sínum.  Sum myndskeiðin sýna hvernig viðföngum böðlana er haldið niðri meðan þau eru pynduð.  Íþróttagalararnir þrír gerðu létt grín undir sýningunni og trúðurinn Barkley lýsti því yfir að hann óskaði sér þess að vera stuðaður af félaga sínum Ernie “Eyjó” Johnson.  Allir hlógu þeir að því hve fyndið það væri að teisa hvern annan og gerðu lítið úr þeirri hættu sem felst í notkun þessa svokallaða lítildauðavopns.  Undir lokin er Barkley gripinn fréttamannaeðlinu og tekur til við fréttaskýringar: Vinir mínir í löggunni segja að þetta sé svakavont í fimmtán sekúndur, en svo er allt í fína.  Svo bætti hann við; Ég vil bara fá að upplifa þetta.

Ekki alveg það sem maður býst við í íþróttaþætti…

Á sama tíma vex fjöldi dauðsfalla sem tengjast notkun lögregluyfirvalda á Taser ™ stuðbyssa á borgara.  Flest neytenda og mannréttindasamtök  halda því fram að teisun séu pyndingar, og notkun þessara vopna mannréttindabrot.  Amnesti International telur að meira en 351 einstaklingur í Bandaríkjunum hafi látist vegna notkunar Taser ™ vopna milli 2001 og 2008.  Á síðasta ári voru einnig mörg dauðsföll og alvarleg meiðsli sem tengjast notkun stuðvopna.  Sjá listann hér. TNT galararnir Johnson, Barkley og Smith ættu frekar að fjalla um þessa tölfræði Taser ™ tengdra dauðdaga, sérstaklega vegna þess að eins og aðdáandinn 17 ára, þá voru næstum allir þessir einstaklingar sem létu lífið í þessum lífshættulegu árásum, algerlega óvopnaðir.

TASER NATION: ‘Inside the NBA’ TV Program Making Fun of Taser Victims

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments