Smiley face
630.devil.girl.dreamstimefree_3261425

Þóra Arnórsdóttir: Neitar að tjá sig

Höfundur bjorn þann . Flokkur Sett í samhengi, Stjórnmál

1) Þóra Arnórsdóttir segist ekki vera Samfylkingarkona. 

2) Hún hefur ekki skoðun á Evrópusambandinu.

3) Vill ekki segja hvað henni finnst um nýja stjórnarskrá.

4) Telur ekki viðeigandi að segja sína skoðun á gömlum forsetum.

5) Neitar að tjá sig um Icesave.

6) Vill ekki tjá sig um krónuna, ekki hlutverk forseta.

7) Vill gera upp fortíðina en ekki á kostnað framtíðarinnar.

8) Vill verða sameiningartákn sem allir geti litið upp til.

Miðað við þessi svör þá held ég að Þóra sé að leita sér að þægilegu innistarfi sem gefi vel í aðra höndina.  Hún reynir ekki einu sinni að segja eitthvað gáfulegt.  Öll hennar svör eru nánast “No comment”.  Bitastæðasta svarið hennar sem þó segir mér ekkert er að hún vill verða sameiningartákn.  Kannski vill hún að þjóðin sameinist um að hafa ekki neina skoðun eins og hún.

Þóra er villuljós sem vill leysa stóra vitann af hólmi.  Hún er rottan sem vill éta matinn okkar.  Hún er sameiningartákn fyrir þá sem vilja halda í gamla Ísland.  Þar sem engin hafði neina skoðun og öllum átti að vera sama um hvað gerðist bak við tjöldin.  Helsta gagnrýni Þóru og félaga hennar í Samfylkingunni sem hún þó kannast ekkert við er að Ólafur lamdi ekki vini hennar í hausinn þegar þeir stálu úr bönkunum.  Ólafi forseta ber að skipta út vegna þess að hann gerði ekkert á móti Björgólfi, Jóni, Ólafi, Finni og félögum.

Ólafur út vegna afskiptaleysis en Þóru inn því hún lofar að hafa ekki skoðun á neinu og gera ekkert.   Þversögn eða hræsni?  Það er spurning en Þóra lofar þó að vera málsvari Íslands í útlöndum og beita sér í þágu fyrirtækja erlendis eins og Ólafur.  Spurning hvort hún ætlar að vera vandlátari og bara hjálpa litlum tveggja manna einkafyrirtækjum sem hún þekkir ekki neitt?

 

 

Lyklar:,

bjorn

Er launamaður og áhugamaður um mat og fjallgöngur niður brekku.

Skrípó