Þjóðhöfðingjum tíðrætt um “spennitreyjur” og ESB

Er ESB ekkert annað en spennitreyja? Reglufargan sem kæfir allt frumkvæði og getu aðildarþjóðanna til að iðka sjálfræði sitt og njóta frelsis? Er lífið í ESB eins og dvöl pólitísks fanga í bólstruðum klefa, íklæddur spennitreyju?
Það er að minnsta kosti athyglivert að tveir þjóðhöfðingjar hafa notað orðið “spennitreyja” í tengslum við ESB á skömmum tíma. Annarsvegar forseti Tékklands, sem segir Evrusamstarfið vera eins og spennitreyja fyrir heilbrigt efnahagslíf og svo Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti vor, sem lýsir samstarfi við skriffinna sambandsins varðandi Icesave málið með þessum hætti:
„Menn beygðu sig fyrir þessu ofbeldi af hálfu Evrópuþjóðanna og samþykktu fyrst samning sem var svo óheyrilegur að ekki aðeins hrópaði íslenska þjóðin hann af heldur hlupu Bretar og Hollendingar frá honum strax nokkrum mánuðum eftir að ákveðið var að setja þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig að það sem er að gerast núna er bara einfaldlega sýn á það að ef haldið hefði verið á málinu af skynsemi frá upphafi þá var bara algjör óþarfi að setja íslenska þjóð og samstarf okkar við Evrópuríkin í þessa spennitreyju.”
Forsetinn bætti svo við:
„Það er rannsóknarefni fyrir Evrópusambandið að horfast í augu við það hvernig í ósköpunum stóð á því að ríki í Evrópusambandinu samþykktu að styðja þessar fáránlegu kröfur Breta og Hollendinga gagnvart Íslandi.“
Lyklar:ESB, Icesave, Ólafur Ragnar








