Þær veiddu Assange


Mynd CC flo_p

Hversu margir karlmenn hafa átt mök við konur án þess að nota smokk, eða þar sem smokkurinn rifnar við notkun?

Þeir eru margir.  Meirihluti, fullyrði ég.  Ef villimannsleg valdstjórn Svíðþjóðar, með sinni ást á alþjóðalögum og framsölum hefur einvherja lögsögu yfir þessum karlmönnum, þá eru þeir sekir, allavega uns þeim tekst að sanna sakleysi sitt, um kynferðisglæpi.

Ég sá í helgarblaði DV, að blaðið túlkar ákærur á Assange sem ákærur um nauðgun.  Það er ekki málið.  Ekki nema tæknileg nauðgun, í fáránlega afleiddu samhengi.  Hér er málið í hnotskurn:

Assange svaf hjá tveimur sænskum kvensum sem voru hrifnar af honum.  Önnur hélt partý fyrir hann daginn eftir ástarfundinn, þar sem smokkur var notaður, en hann rifnaði í hamaganginum.  Hún tísti frá partýinu á twitter um hvað hún væri með kúl fólki.  Það tíst reyndi hún að fjarlægja þegar hún síðar lagði fram ákæruna, en of margir höfðu séð það.  Hina hafði hann hitt um daginn og hringdi í hana til að mæla sér mót við hana síðar.  Sú montaði sig við vini sína um daður sitt við þennan áberandi mann, sem hefur nánast rokkstjörnuáru, allavega hjá þeim sem eitthvað fylgjast með stjórnmálum, eða horfa á sjónvarp, þar sem nýjustu grýlur heimsins fá alltaf einhverja athygli.

Daginn eftir hitti hann hina kerluna, þau fóru í lestarferð heim til hennar og sváfu saman.  Hann notaði smokk og gisti hjá henni.  Morguninn eftir brann aftur glóð í lendum annars eða beggja og þau áttu annan ástarfund, í þetta skiptið án smokks.

Svo tékkaði karlinn sig inn, fékk sér kampavínssopa á betri stofunum og flaug í dýrðarljóma í burtu.  Eftir sátu tvær sænskar skonsur, sem kannski hafa horft á of margar Hollywood myndir, bjuggust við að prinsinn myndi kippa þeim upp á hvíta hestinn og þeyta þeim inn í dýrðarheim þotuliðsins, en ekki skilja þær eftir í fúlum sænskum smáborgarabæjum.  Eða þær voru frá upphafi á mála hjá CIA, önnur eða báðar, og vegna alræðislegrar löggjafar í ríkiselskandi landi, þá þurfti ekki mikið til að veiða Assange í hunangsgildru. 

Kynmök með samþykki beggja, þar sem smokkur rifnar eða er ekki notaður.  Það er allt og sumt.  Þá er maðurinn grunaður um glæp í þessu ríki.  Þvílík hneysa fyrir Svíðþjóð, að gefa út þessa ákæru og reka hana af þessum ofsa.

Anna Ardin

Hér er frásögn DailyMail

af málinu, þar eru þessum konum gefin dulnefni.  Þessi frásögn rekur í smáatriðum söguna, tímaröð, hver kaupir lestarmiða, hver talar við hvern og svo framvegis.

Í öðrum fjölmiðlum kemur betur fram hverjar þessar konur eru, sérstaklega önnur þeirra, Anna Ardin, sem einnig kallar sig Anna Bernardin.  Hún er femínisk stríðsprinsessa, sem hefur bloggað uppskrift að hefndum, fyrir konur sem finnast þær hafa verið notaðar eða dregnar á tálar af körlum.  Samkvæmt hennar öfga feminíska skilningi, þá eru öll kynmök við karla í raun nauðgun þeirra á konum.  Á síðustu dögum hafa þó stór nöfn úr heimi feminista risið gegn þessu framtaki Önnu, þar á meðal Naomi Klein, og Naomi Wolf, og meira að segja kvennaathvarfið Women Against Rape hefur gefið út yfirlýsingu þar sem ásakanir á hendur Assange eru véfengdar.

Anna Ardin kann að tengjast CIA og gæti hafa fengið það verkefni að flækja Assange í vef sænskra forsjárhyggjulagabálka, svo hægt væri að ná taki á þeim sleipa ál.  Hún vann með / fyrir vefsetur sem fjármögnuð eru af USAID og stjórnað er af CIA, segir á vef vinafélags Ástralíu og Kúbu.

Meira um CIA tengsl Ardin: http://www.infowars.com/cia-honeytrap-ardin-deleted-twitter-posts-praising-assange/

http://www.infowars.com/assange-accuser-may-have-ceased-co-operating/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments