Tengsl bólusetninga og einhverfu

Bandarísk stjórnvöld greiða bætur til foreldra stúlku sem varð einhverf eftir 18 mánaða bólusetninguna og viðurkenna þar með tengsl bólusetninga og einhverfu.

Hannah Poling var heilbrigð og þroskaðist eðlilega þar til hún fór í 18 mánaða skoðun þar sem hún var bólusett fyrir 9 sjúkdómum, en tvær af þeim sprautum innihéldu thimerosal, rotvarnarefnið sem er að hluta til kvikasilfur.  Innan tveggja sólarhringa frá bólusetningunni varð Hannah veik, hætti að ganga og svaf ekki lengur óslitið um nætur.  Innan þriggja mánaða sáust merki um einhverfu.

Samkvæmt dómsnefnd um bætur vegna aukaverkana bólusetninga ollu sprauturnar verulegri ertingu á undirliggjandi ‘mitochondrion’ röskun og olli heilaheilkenni með eiginleikum einhverfuröskunar.

Þrátt fyrir að fulltrúar yfirvalda segi enn að það séu engin tengsl milli einhverfu og bóluefna, þá táknar þessi eftirgjöf annað. 

Faðir Hönnu Poling, en hún er nú orðin 11 ára, er taugasérfræðingur, sem kann að skýra hvernig nefndinni tókst ekki að vísa málinu frá og neita öllum tengslum.

Í viðtali frá því 2008 þegar nefndin úrskurðaði í málinu, segja foreldrar Hönnu að eftirgjöf yfirvalda  muni auðvelda þeim að greiða fyrir alla þá þerapíu og sérfræðiaðstoð sem barnið þarfnast, nú og um alla hennar tíð.

http://www.ajc.com/metro/content/health/stories/2008/03/06/autism_0306.html

http://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2008/3/22/u-s-government-concedes-that-mercury-causes-autism.aspx

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments