
TSA hefur staðhæft að tækin geti ekki vistað né sent myndir af nöktum farþegum sem eru nektarskimaðir. En nú er ljóst að tækin eru hönnuð til að gera einmitt það.
Samkvæmt frétt CNET kemur fram að önnur alríkisstofnun, Dómsvarðastofa, hefur viðurkennt að hún búi yfir meira en 30.000 hágæða myndum af nöktum kroppum sem þeir geymdu af nektarskima sem settur var upp í dómshúsi í Flórida.
Electric Privacy Information Center (EPIC) hefur komist yfir meira en 100 af þessum myndum og heldur fram á vefsíðu sinni að “myndirnar, sem eru ítrekað vistaðar af þessari alríkisstofnun, sanna að nektarskimarnir taka upp og geyma myndir af einstaklingum strípuðum klæða og alsnöktum.” Hópurinn hefur hafið málssókn til að stöðva notkun og uppsetningu nektarskima á flugvöllum.
http://www.sfgate.com/cgi-bin/blogs/cmcginnis/detail??blogid=181&entry_id=69524#ixzz0w2WbHq8V
Mynd CC Chriss!
Comments
Powered by Facebook Comments