Teflon pönnur kunna að valda háu kólestróli

Þvert á almenna skoðun bendir ný rannsókn til þess að börn með hærri mæligildi efna sem notuð eru við framleiðslu teflon panna og til að vatnsverja fatnað, hafi einnig hærri mæligildi kólestróls.

Rannsóknin er birt í septemberblaði Archives of Pediatrics & Adolescent Medicine.

Fólk fær þessi manngerðu efni sem nefnast perfluoroalkyl sýrur, þar á meðal perfluorooctanoic sýru (PFOA) og perfluorooctanesulfonate (PFOS) með drykkjarvatni, ryki, pakningum, brjóstamjólk, örbylgjupoppi og við vinnu með efnið, segir í bakgrunnsupplýsingum úr greininni.

Í janúar á þessu ári sagði Dailymail frá því að teflonhúðuð eldunaráhöld (PFOA) hafi verið tengd vandamálum í skjaldkirtli.  Þar segir líka að efnið sé einnig talið krabbameinsvaldandi.

Kryppan mælir með algerri íhaldssemi varðandi mat og eldunaráhöld, þegar fjársterkir aðilar og stofnanir fjármagna hvern gáfubankann á fætur öðrum til að finna leiðir til að fækka okkur.  Glerílát eru góð, en hefðbundnir pottar og pönnur ættu einnig að vera í lagi.  Smjörsteikið bara eða notið tólg, frekar en að reyna að þurrsteikja á einhverjum eiturpönnum.

http://www.dailymail.co.uk/health/article-1244883/Non-stick-pan-chemical-linked-thyroid-disease.html

http://www.medpagetoday.com/Cardiology/Dyslipidemia/22044

Mynd CC waferboard
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments