Íslandsvinurinn Webster Tarply liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn. Í nýlegri vefgrein sinni á Tarply.net og viðtali á RT NEWS skammar hann svokallaða snaróða Malthúsarverja. En það er fólk sem trúir því að of margir búi á jörðinni og það þurfi að grisja allar dauðu greinarnir, þ.e.a.s. þig og mig.
Nýlegt lagafrumvarp Liebermann og Kerrys í bandaríska þinginu hefur verið dregið til baka. En í frumvarpinu voru lagðar til stórfelldar skattahækkanir á eldsneyti. Sem hefði þýtt gríðarlegan samdrátt í viðbót hjá bandarískum heimilum og fyrirtækjum.
En Tarpley heldur að þetta sé bara tímbundin frysting og það verði aftur reynt að keyra frumvarpið í gegnum þingið nú í haust. Þegar hægt verður að stóla á atkvæði 40 Demókrata sem ekki eiga möguleika á endurkjöri en vilja kósi innivinnu hjá Obama.
Á meðan var haldin 24 landa ráðstefna orkumálaráðherra í Washington. Þar kom fram að reisa þyrfti 500 ný orkuver ef einhver framþróun ætti að eiga sér stað í þróunarlöndunum. En þar sem þetta voru helstu Malthúsarrugludallar samtímans samankomnir var ákveðið að ekkert yrði byggt. Best væri að mála húsþök hvít til að spara rafmagn og treysta á vindmillur.
Tarpley getur sér síðan til um að yfirvofandi innrás í Íran sé kannski bara fín leið til að hækka olíverð og bendir á að árið 1973 hafi Bilderberráðstefnan í Saltsjobaden spáð 400% hækkun sem hafi ræst nokkrum mánuðum síðar.

Comments
Powered by Facebook Comments