Viskubrunnurinn og rannsóknarblaðamaðurinn Webster Tarpley hefur tekið saman helstu stríðsvísana sem benda til stríðsátaka við Íran. En þeir eru:
1. Varnaðarorð Fidels Castro og nú síðast sérstakan þingfund þar sem Castro skoraði á allt friðelskandi fólk að afstýra yfirvofandi hörmungum.
2. Fréttabann á orð Castrós í bandarískum fjölmiðlum og skringilegan fréttafluttning á kostnað alvöru frétta.
3. Hryna hryðjuverka og stríðsátaka milli aðila. T.d. átök Ísraels og Líbanons þann 3. ágúst. Árás á japanskt flutningaskip undan ströndum Írans. Ásamt nýjum og harðnandi átökum á Gaza.
4. Æðsti stríðshundur Obama, aðmíráll Mike Mullen, jánkar því að til sé nákvæmt árásarplan fyrir innrásina í Íran í bandarískum sjónvarpsþætti.
5. Yfirmenn í íranska hernum og stjórnsýslu svara fyrir sig og líkja bandarískum starfsbræðum sínum við galna fasista með stríð á heilanum.
6. Friðarverðlaunahafi Nóbels tjáir öllum sem vilja heyra það að innrás í Íran komi vel til greina.
7. Achmadinejad, forseti Írans, segir að Bandaríkin muni ráðast á tvö lönd innan 3ja mánaða.
8. Varnarmálaráðherra Írans varar Ísrael við ævintýrum af þeirra hálfu.
9. Wikileaks lekinn og innihald þeirra skjala.
10. Mismæli breska forsætisráðherrans.
11. Tímasetning Hariri skýrslunar.
12. Mikilsmetinn Bilderbergari og pistlahöfundur spáir nýju 9.11 hryðjuverki til að lappa upp á vinsældir Obama.
13. Tíðar heimsóknir ráðamanna Ísraels og Bandaríkjanna til bandamanna.
14. Bandarískir þingmenn lýsa yfir stuðningi við árás á Íran.

Comments
Powered by Facebook Comments