
Forheimskað, siðlaust og níhilískt bull frá fólki eins og Gaga og Katy Perry stuðlar að hrörnandi andlegu ástandi massans. Vinsæl tónlist er samfélag Babýlon.
Paul Joseph Watson skrifar á Prison Planet.com, 2.7.2010
Það hefur aldrei verið eins augljóst fyrir þá sem hafa sloppið úr þeim hjólförum sem samfélagið setur okkur í, að tónlistariðnaður kerfisins pumpar nú út því mest forheimskandi, tilbreytingarlausa rusli sem sést hefur, rusli sem raunar stuðlar að þunglyndi og örvæntingu hjá þeim sem eru upplýstir og meðvitaðir, en samtímis sér Babýlon-stjörfum fjöldanum fyrir dáleiðandi brauði og sirkusum.
Ef lesendur kryppunnar setjast niður og horfa á MTV í klukkustund, þá myndu þeir væntanlega rísa ráðvilltir á fætur, fullir ógeði á þeirri skrúðgöngu sjúkleika, persónudýrkunar og tilbeiðslu á öllu því sem að er í samfélagi okkar. Peningaást, slæging siðferðis, upphafning nýníhílisma, árás á fjölskyldumynstrið, það afkárlega, sjúka og brenglaða gert eðlilegt.
Stórstraumsmenning er ekkert annað en tæki sem elítan notar til að auka minnimáttarkend okkar, láta okkur finnast við ómerkileg, valdalaus og vonlaus. Hún vill telja okkur trú um að það merkilegasta sem við getum komið í verk í lífi okkar sé að verða ”töff” í útliti, og apa upp einkennisbúning og viðhorf hvers þess tískustraums sem okkur líst best á. Það er svo einungis hægt með því að apa upp heilalausa hegðun fólksins sem við sjáum í tónlistarmyndböndunum.
Þetta er ástæðan fyrir því að heilu skararnir af ungu fólki af öllum kynþáttum og stéttum ramba um og reyna að líta eins út og herma eftir röppurum sem ganga með buxurnar á hælunum, geta varla talað og lifa einungis fyrir næsta fyllerí eða dóptúr og innihaldslaus skyndikynni með konum sem þeir hlutgera sem tæki til líkamlegra nautna.
Án efa er erfiðasta hindrunin gegn því að upplýsa fólk um hvers vegna það er þunglynt í sínu sífelt einangraðra, tilfinningalega óstöðuga og óheilbrigða lífi, er að draga það frá þessum afþreyingargildrum sem stuðla að hnignun þeirra.
Máttur afþreygingarinnar sem deyfilyf fyrir fjöldann hefur aldrei verið meiri og með almennri innleiðingu þrívíddartækni, þá eru verkfæri dáleiðslunnar bara að verða öflugri.
Frétt í London Guardian sem nefnist “Lafði Gaga og hin nýja heimmynd” eykur orðstír vefstæðis Árvökula borgarans verulega. Vefurinn fjallar um það hvernig tónlist er notuð til að halda fólki niðri og uppteknu af kuski, og einnig sérstaklega hvernig tákn og skilaboð eru falin (lítið falin upp á síðkastið) í myndmálinu.
Guardian skrifar:
Árvökuli borgarinn á alvarlegt tilkall til að teljast heimsins sérstakasti tónlistargagnrýnandi. Á vefsíðu sinni, vigilantcitizen.com, lýsir hann sér sem útskrifuðum í almannatengslum og stjórnmálum og framleiðanda fyrir nokkra “fremur vel þekkta ‘urban’ listamenn”. Hann hefur stundað rannsóknir í fimm ár á guðspeki, frímúrurum, leynifélagi rósarkrossfara, bæverska illuminatíinu og vestrænni dulspeki. Öll þessi áhugamál koma saman í brjálæðislega nákvæmri greiningu hans á táknmáli tónlistarmyndbanda og texta þeirra. Til að mynda hermir sýning Pink á MTV verðlaunahátíðinni eftir vígsluathöfn frímúrara; Run this town með Jay-Z heiðrar komu hinnar nýju heimsmyndar og myndband Black Eyed Peas, ‘Imma Be Rocking That Body’, styður við vélvæðingu mannslíkamans og stefnuna til lögregluríkis.
Lesið meira
http://www.prisonplanet.com/popular-music-is-the-babylon-system.html
http://www.guardian.co.uk/music/2010/jul/01/lady-gaga-vigilant-citizen-illuminati
Comments
Powered by Facebook Comments