Taka stöðu gegn dollaranum

Þetta gæti hljómað kunnuglega fyrir Íslendinga, en stóru bandarísku bankarnir eru nú að færa eigur sínar í erlenda gjaldmiðla, þeir eru að taka stöðu gegn dollaranum.

Á sama tíma og erfiðara reynist að selja bandarísk ríkisskuldabréf (Seðlabankinn ehf kaupir nú stórann hluta þeirra), þá eru stóru bandarísku bankarnir, Góldman Sachs og Morgan Stenley, bólgnir af skattfé úr aðgerðapökkum stjórnvalda, að leita sér að erlendum fjárfestingum, í Kína, Brasiliu og víðar.

Engdahl segir stóru bankana hafa eyðilagt eigin heimamarkað með svikamyllu afleiðutrygginga á árunum 2007-2009, og gengið nærri þeim evrópska með krísunni á Grikklandi, Portúgal og svo framvegis.

Fréttamaðurinn skilur ekki alveg hví Kínverjar reyni að hamla aðgangi þessa flotta fjármagns að mörkuðum sínum.  “Hvert sem þeir hafa farið,” segir Engdahl, “hafa þeir rústað fjármálakerfunum.  Að opna fyrir einkarekinn fjárfestingasjóð Goldman Sachs í Peking, er eins og að hleypa rebba inn í hænsnakofann.”

Þeir vilja komast inn í Kína, Brasilíu, Rússland, þar sem þeir telja enn einhverja ávexti óétna, en þessi áhugi er ekki uppbyggilegur, heldur frekar í ætt við ránkapitalisma.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,