Smiley face

Posts Tagged ‘Pólland’

jail.cc.Funky64

Pólverjar tala um leynifangelsi CIA

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Lögregluríkið

Mynd CC Funky64

Árum saman var sú hugmynd að Pólverjar hefðu leyft CIA að reka leynifangelsi við afskekkt vatn talin hlægileg og þeir sem viðruðu slíkar hugmyndir voru hæddir og afskrifaðir sem klikkhausar.

En heit umræða í síðustu viku leiðir í ljós hve gríðarlega sú mynd hefur breyst.  Hver uppljóstrunin og yfirlýsingin hefur rekið aðra og pólskir ráðamenn eru bara hársbreidd frá því að viðurkenna fullum fetum að Bandaríkin hafi rekið leynilega “yfirheyrslumiðstöð” fyrir grunaða hryðjuverkamenn á árunum 2002 og 2003.

Öfugt við Íslendinga þá eru Plólverjar að gera upp svik bandarískra stjórnvalda við þá og aðrar þjóðir sem töldu Bandaríkin fórnarlömb hryðjuverka sem börðust neyðarbaráttu við öfl sem vildu eyðileggja vestrænt frelsi og velmegun.

Pólverjar sjá kannski núna að bandarísk stjórnvöld eru sjálf versti óvinur vestræns frelsis og velmegunar.  Það sem verra er, þeir eru nýlega frelsaðir undan oki alræðisríkis sem stundaði heimsvaldastefnu og þeir hafa lítinn áhuga á að púkka upp á rísandi alræði í nýrri útgáfu af sovétinu.

Þeir vita hvað leynifangelsi þar sem fólk hverfur eru, þeir vita líka hvað pyndingar og lygar eru.  Þeir eru ekki svo bláeygir að halda að falleg orð og föðurlegir landsfeður dugi til að réttlæta hvað sem er.

Þó eru pólskir stjórnmálamenn svipað spilltir og duglausir og aðrir.  Þeir hafa vísað öllum sögum um leynifangelsi CIA á bug, jafnvel eftir að SÞ og evrópustofa sögðust hafa sannanir fyrir pyndingamiðstöðinni.  En hugmyndin hefur smám saman náð fóstfestu meðal almennings í Póllandi.  Eins og Íslendingar áttuðu sig smám saman á því að “íslenska efnahagsundrið” var lygaþvæla sem stjórnvöld og fjölmiðlar sameinuðust um, þá eru Pólverjar að átta sig á því að þeirra nýfengna frelsi var svívirt með pyndingamiðstöð í ætt við sovétið.  Þeir sem eru ábyrgir fyrir því að leyfa þessu að grassera gætu átt von á frekar harkalegri dómi heldur en íslensku útrásarvíkingarnir.

http://www.mail.com/int/news/europe/1173428-poles-talk-cia-prison-breaking-silence.html

 

620.KatynMemorialToronto2010.cc.TomaszPiwowarek

Skipt um stjórn með flugslysi

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Hryðjuverk og fölsk flögg

Mynd CC Tomasz Piwowarek
Pólverjar safnast saman við minnismerki um Katyn fjöldamorðin
í Toranto Kanada, 10. apríl 2010, nokkrum tímum eftir flugslysið

Pólland hafnar niðurstöðum Rússa úr rannsókn á flugslysi þar sem forseti landsins lét lífið.

Pólland hefur hafnað rannsóknarskýrslu frá Moskvu um flugslys sem tók líf nítíu og sex manns, þar á meðal forseta landsins.  Slysið átti sér stað í suðvesturhluta Rússlands í apríl  síðastliðinn.  Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hefur gagnrýnt niðurstöðurnar og lýst þeim sem rakalausum og óásættanlegum.

Kryppan sagði frá þessu á sínum tíma, ásamt myndbandi frá hópi manna, ef til vill á veiðum, sem kemur að flugslysinu, með myndavél í gangi, og sér í fjarska hvernig hermenn ganga um og senda þá yfir móðuna miklu, sem með lífsmarki eru.

Þetta myndband er nú aðgengilegt með enskum texta, ásamt því að hlutar af því hafa verið stækkaðir upp og greindir betur.

Það er erfitt að vita nákvæmlega hvað hér gerðist, en eitt er víst, að það eru ekki bara stjórnir Bandaríkjanna eða Bretlands sem eru illar og undirförular.  Allar ríkisstjórnir leitast við að auka vald sitt og véla fólkið.  Til að vel megi vera, þá þurfa þessi embætti að hafa mjög takmarkað vald, og engan rétt á “trúnaði”, það er að segja, ekkert á að vera “trúnaðarmál”, eða “verndað” frá augum fólksins.  Stjórnvöld starfa í umboði fólksins, fólkið á ekki líf sín í umboði stjórnvalda.

Flugslysið átti sér stað á 70 ára afmæli Katyn fjöldamorðanna, en þá höfðu Sovétmenn og Nazistar gert með sér dálítið samkomulag, og Nazistar létu það afskiptalaust þegar rússar myrtu 22.000 pólska embættismenn, menntamenn, landeigendur og leiðtoga í pólsku samfélagi. 

Ætli Rússar hafi fengið grænt ljós á þessi nýju Katyn fjöldamorð frá nýjum leiksoppum (NATO) sömu aðila og stýrðu Nazistum?

Nánar: http://www.infowars.com/poland-rejects-russias-findings-over-plane-crash-that-killed-president/

Kryppan skrifar um málið:
Flugslys pólsku vélarinnar hryðjuverk?
Kaczynski var til vandræða innan ESB
Meðspilari í stað Kaczynski?

Tvíburabróðir Lech Kaczynski býður sig fram

Höfundur Starfsmenn þann . Flokkur Andspyrna, Klórað í yfirborðið

Tvíburabróðir fyrrum forseta Póllands, Lech Kaczynski sáluga, mun bjóða sig fram til forseta í stað bróður síns.

Lech Kaczynski lést í flugslysi í vesturhluta Rússlands þann 10 apríl síðastliðinn ásamt fjölmörgum stjórnmála og embættismönnum Póllands.

Tvíburabræðurnir stofnuðu saman flokkinn “Lög og réttlæti” árið 2001 og höfðu hreinsað þónokkuð til eftir valdatíma kommúnista.  Lech þótti ekki auðsveipur í viðskiptum við ESB.

Meðspilari í stað Kaczynski?

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Hin nýja heimsmynd, Klórað í yfirborðið, Tekknókratar

CC mynd Marcin Ostojski

Í frétt Business Week frá í fyrradag segir að Andrzej Olechowski muni sækjast eftir embætti forseta Póllands í stað Lech Kaczynski, sem létst í flugslysi fyrir skömmu.

Hann er líklegur til að sigra, ekki endilega vegna vinsælda, heldur vegna þess að hann er meðlimur í Council on Foreign Relations (CFR) og Trilateral Commissions, auk þess að hafa gegnt starfi hagfræðings fyrir Alþjóðabankann.

Hann er því góður og gildur meðspilari, Team Player, harður stuðningur alþjóðavæðingar og hinnar nýju heimsmyndar.

Ekki skemmir fyrir að hann virðist vinna náið með banksterunum og hefur setið í framkvæmdastjórnum ýmissa Evrópskra banka og samsteypa.  Þar ber helst að nefna setu í ráðgjafanefnd Góldmans Sachs. 

CFR, Trilateral Commission Member to Replace Poland’s Kaczynski?

Skrípó